Rafíþróttadeild Keflavíkur
Rafíþróttadeild Keflavíkur
Rafíþróttadeild Keflavíkur

Yfirþjálfari Rafíþróttadeild Keflavíkur

Keflavík, íþrótta- og ungmennafélag, leitar að öflugum og metnaðarfullum yfirþjálfara til að leiða rafíþróttadeild félagsins. Rafíþróttir eru ört vaxandi íþróttagrein og hjá Keflavík bjóðum við upp á metnaðarfullt og faglegt starf þar sem áhersla er lögð á jákvætt umhverfi, heilbrigðan lífsstíl og félagsþroska iðkenda.


Helstu verkefni og ábyrgð:


Yfirþjálfari ber ábyrgð á daglegu starfi deildarinnar, skipuleggur og leiðir æfingar barna og ungmenna og fylgir eftir framförum iðkenda. Í starfinu felst jafnframt að móta og þróa starf deildarinnar til framtíðar, byggja upp jákvæða liðsheild og stuðla að því að iðkendur fái að njóta sín – bæði sem einstaklingar og sem hluti af hópi.
Tækifæri til að vaxa í starfi:


Við gerum okkur grein fyrir því að starf rafíþróttaþjálfara er nýtt af nálinni. Því verður þeim sem ræðir er boðið upp á þjálfaranámskeið hjá Rafíþróttasambandi Íslands (RÍSÍ). Deildin nýtur jafnframt ríks stuðnings frá sambandinu við uppbyggingu og þróun starfsins. Það er því ekki skilyrði að hafa fyrri reynslu af rafíþróttaþjálfun, áhugi, frumkvæði og vilji til að læra skiptir mestu máli.


Við leitum að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á að vinna með börnum og ungmennum, hefur ástríðu fyrir rafíþróttum og vill taka þátt í að byggja upp kraftmikið og faglegt æskulýðsstarf í Keflavík.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipulagning, undirbúningur og stjórnun æfinga fyrir börn og ungmenni í rafíþróttum.
  • Dagleg umsjón og ábyrgð á starfi rafíþróttadeildarinnar.
  • Þjálfun og leiðsögn iðkenda, bæði í leikjafærni og almennri liðsheild.
  • Eftirfylgni með framförum, líðan og ástundun iðkenda.
  • Kynning á rafíþróttastarfi deildarinnar í grunnskólum og uppbygging nýliðunar.
  • Uppbygging og þróun keppnisliðs deildarinnar, þ.m.t. undirbúningur og þátttaka í mótum og keppnum.
  • Að stuðla að jákvæðu, öruggu og hvetjandi umhverfi þar sem áhersla er lögð á heilbrigðan lífsstíl, góða umgengni og félagsþroska.
  • Skipulagning hópeflis og félagsstarfs innan deildarinnar.
  • Samskipti við iðkendur, forráðamenn og stjórn félagsins.
  • Þátttaka í að móta og þróa starf deildarinnar til næstu ára.
  • Umsjón með búnaði og aðstöðu deildarinnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af starfi með börnum og ungmennum er mikilvæg.
  • Áhugi og þekking á rafíþróttum og æskulýðsstarfi er æskileg.
  • Menntun sem nýtist í starfi er mikill kostur (t.d. tómstunda- og félagsmálafræði, uppeldismenntun eða þjálfararéttindi).
  • Frumkvæði, sjálfstæði og framúrskarandi skipulagshæfni.
  • Leiðtogahæfni og reynsla af því að stýra hópefli fyrir börn og ungmenni.
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvætt viðmót og rík samstarfsgleði.
  • Góð tæknikunnátta og almenn tölvufærni.
  • Skýr og góð miðlun upplýsinga í ræðu og riti.
  • Metnaður og áhugi á að taka þátt í að móta framtíðarstarf deildarinnar.
Auglýsing birt8. júní 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Hringbraut 108, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.AuglýsingagerðPathCreated with Sketch.CanvaPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FacebookPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.Framkoma/FyrirlestarPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.InstagramPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Markaðssetning á netinuPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.StefnumótunPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)PathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Windows
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar