Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Iðjuþjálfi - Heimahjúkrun HH

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins óskar eftir að ráða iðjuþjálfa í Heimahjúkrun. Um er að 60-100% framtíðarstarf, frá og með 1. apríl nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sinnir heimahjúkrun í Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og Mosfellsumdæmi og er með aðsetur í nýju og glæsilegu húsnæði að Miðhrauni 4 í Garðabæ. Hlutverk heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun sem er sérsniðin að þörfum hvers og eins þar sem forvarnir, heilsuvernd, heilsuefling, fagleg þekking og samstarf eru höfð að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Iðjuþjálfi vinnur sjálfstætt en er í náinni samvinnu við aðra starfsmenn heimahjúkrunar. Hann veitir stuðning og ráðgjöf til skjólstæðinga og aðstandenda þeirra varðandi aðbúnað á heimili og úrræði þannig að skjólstæðingur geti verið öruggur í daglegu umhverfi sínu. Hann styður skjólstæðinga við að fylgja meðferðaráætlun og endurmetur þarfir þeirra í samræmi við hana. Lögð er áhersla á aðgengilega þjónustu og að skjólstæðingar séu virkir í meðferð. Iðjuþjálfi vinnur að því að efla og viðhalda iðju og færni þannig að skjólstæðingur geti sinnt sínum daglegu verkefnum eins og hægt er. Iðjuþjálfi sinnir einnig stuðningi, ráðgjöf og fræðslu til starfsmanna heimahjúkrunar.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun til starfsréttinda sem iðjuþjálfi og íslenskt starfsleyfi frá Embætti landlæknis
  • 3 ára starfsreynsla æskileg
  • Góð almenn tölvukunnátta (word, excel, powerpoint, outlook)
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Færni til að vinna í þverfaglegu teymi
  • Fagleg vinnubrögð og áhugi á að vinna við heimahjúkrun
  • Sjálfstæði í starfi
  • Gilt ökuleyfi
  • Hreint sakavottorð
  • Góð íslenskukunnátta, í töluðu og rituðu máli
  • Góð enskukunnátta

 

 

Fríðindi í starfi
  • Heilsueflingarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
Auglýsing birt10. mars 2025
Umsóknarfrestur20. mars 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Valkvætt
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Miðhraun 4, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.ÞjónustulundPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar