
Ráðgjafar- og greiningarstöð
Ráðgjafar- og greiningarstöð er miðlæg þjónustu- og þekkingarmiðstöð sem starfar á þverfaglegum grunni og sinnir börnum að 18 ára aldri hvar sem þau búa á landinu. Hlutverk hennar er m.a. að annast greiningu og ráðgjöf vegna barna með víðtækar þroskaraskerðingar, sinna fræðilegum rannsóknum á þessu sviði og veita börnum með venjuflóknar eða sjaldgæfar fatlanir langtímaeftirfylgd. Öflun og miðlun þekkingar og þroskaskerðingar og fræðsla um helstu íhlutunarleiðir er enn fremur meðal hlutverka stofnunarinnar.
Iðjuþjálfi
Hefur þú brennandi áhuga á að starfa að fjölbreyttum verkefnum tengdum fjölskyldum fatlaðra barna með þverfaglegu teymi starfsfólks Ráðgjafar- og greiningarstöðvar? Auglýst er laust til umsóknar starf iðjuþjálfa á sviði Langtímaeftirfylgdar. Langtímaeftirfylgd sinnir fötluðum börnum og unglingum sem ætla má að þurfi sérhæfða þjónustu til lengri tíma. Þjónusta sviðsins er þverfagleg og tekur mið af þörfum barna og fjölskyldna þeirra. Byggt er á ráðgjafar- og teymisvinnu með áherslu á fjölskyldumiðaða þjónustu.
Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi sem iðjuþjálfi
Góð samskipta- og samstarfshæfni og færni til að starfa í teymi
Færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Þekking og áhugi á tölvu- og tæknitengdum lausnum er æskileg
Helstu verkefni og ábyrgð
Mat á hreyfifærni og hreyfiþroska barna
Ráðgjöf, fræðsla og eftirfylgd fyrir börn og unglinga með alvarleg þroskafrávik í samvinnu við fjölskyldur og fagaðila, m.a. um hreyfifærni, hjálpartæki og aðgengismál
Þátttaka í fræðslu- og rannsóknarstarfi
Auglýsing birt17. nóvember 2022
Umsóknarfrestur28. nóvember 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Dalshraun 1, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (11)

Kennari óskast til starfa - frá áramótum
Leikskólinn Sjáland

Sérfræðingur á Læk - athvarfið Lækur
Hafnarfjarðarbær

Kraftmikill og metnaðarfullur deildarstjóri óskast í afleysingu í 1 ár frá áramótum
Leikskólinn Sjáland

Iðjuþjálfi
Reykjalundur

Frístundaleiðbeinandi í félagsmiðstöð - Stöðin (Stöðvarfjörður)
Fjarðabyggð

Iðjuþjálfi í endurhæfingarteymi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Íbúðakjarni / Skammtímavistun: Þroskaþjálfi
Dalvíkurbyggð

Starfsmenn óskast í stoðþjónustu við fötluð börn
Akraneskaupstaður

Stuðningsfulltrúi óskast í Þorláksskóla
Þorláksskóli

Iðjuþjálfi - Vertu hluti af öflugu teymi iðjuþjálfa á Landakoti
Landspítali

Iðjuþjálfi - Komdu að vinna með okkur í geðþjónustu
Landspítali