
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Íbúðakjarni Fossvogi - Vaktavinna
Þjónustumiðstöð Laugardals-og Háaleitis óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa
í metnaðarfullan og skemmtilegan starfshóp Íbúðakjarnans að Bleikargróf 4.
Í Bleikargróf búa fimm fatlaðir einstaklingar sem þurfa umönnun og aðstoð við athafnir daglegs lífs. Lögð er áhersla á fagleg vinnubrögð og sjálfstæði hvers íbúa. Starfið er fjölbreytt og líflegt. Unnið er eftir hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf.
Um er að ræða ca 60-90 % starf, morgun- kvöld- nætur og helgarvaktir.
Menntunar- og hæfniskröfur
Góð almenn menntun.
Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg.
Umhyggja og þolinmæði.
Hæfni í mannlegum samskiptum.
Frumkvæði, yfirvegun og sjálfstæði í vinnubrögðum.
Íslenskukunnátta á stigi B2.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hvetja og styðja íbúa til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni.
Aðstoða íbúa við athafnir daglegs lífs, bæði innan heimilis og utan.
Sinna umönnun og vera vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan íbúa.
Auglýsing birt3. maí 2021
Umsóknarfrestur11. maí 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Bleikargróf 4, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (6)

Deildarstjóri óskast í búsetuþjónustu
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Starfsmaður óskast í Vettvangs- og ráðgjafateymi Reykjavíkurborgar
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hjúkrunarfræðingur Droplaugarstaðir MND deild
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Umönnun Droplaugarstaðir
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Teymisstjóri hjúkrunar Droplaugarstöðum
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Teymisstjóri stjórnsýslu og gæðamála hjá Barnavernd Reykjavíkur
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Sambærileg störf (12)

Baðvarsla stúlkna - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær

Traust aðstoðarkona óskast
NPA miðstöðin

Deildarstjóri óskast í búsetuþjónustu
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Starfsmaður óskast í Vettvangs- og ráðgjafateymi Reykjavíkurborgar
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Starfsmaður í skipaafgreiðslu á Reyðarfirði
Eimskip

Ertu til í flippað hlutastarf með afleysingarívafi?
NPA miðstöðin

Stuðningsfulltrúi óskast á miðstig
Kársnesskóli

Aðstoðarmaður á læknastofur
Læknastofur Reykjavíkur

Klettaskóli-Korpu - stuðningsfulltrúi
Klettaskóli

Umönnunarstörf - Sóltúni í Reykjavík
Sóltún heilbrigðisþjónusta

AÐSTOÐARKONA ÓSKAST – NPA
Arnheiður og Árdís NPA

Stuðningsaðili barna og ungmenna (liðveisla)
Fjarðabyggð