Advania - Gamalt
Advania - Gamalt
Advania - Gamalt

Hugbúnaðarsérfræðingur í veflausnum

Hefur þú brennandi áhuga á að búa til framúrskarandi hugbúnað? Finnst þér gaman að prófa nýjustu tækni og leysa flókin vandamál með henni? Vilt þú starfa á líflegum vinnustað við hlið fagfólks í fremstu röð við þróun á hágæða hugbúnaði með notendaupplifun að leiðarljósi? Við leitum að öflugu fólki, sem þekkir hugbúnaðarþróun út og inn, til að bætast í teymið okkar hjá veflausnum Advania.

Veflausnir

Hjá veflausnum Advania starfa í kringum 50 manns og er því um að ræða eina af stærstu hugbúnaðardeildum landsins. Hópurinn hefur þróað ótal margar stórar sem smáar lausnir fyrir breiðan hóp ánægðra viðskiptavina. Við hjá veflausnum erum í stöðugri þróun, viljum alltaf gera betur og viljum eiga ánægðustu viðskiptavinina. Við setjum viðskiptavini okkar í fyrsta sætið og hjálpum þeim að ná samkeppnisforskoti á sínum sviðum. Við leitum að aðilum sem hafa mikla þjónustulund, hugsa í lausnum og eru reiðubúnir að leggjast á árarnar með okkur.

Starfssvið

Um er að ræða fjölbreytt verkefni tengd veflausnum fyrir breiðan hóp viðskiptavina. Meðal helstu verkefna eru nýsmíði og viðhald á umfangsmiklum vefkerfum og öppum, s.s. ytri vefir, innri vefir, vefverslanir, mínar síður og þjónustugáttir ásamt samþættingu við hin ýmsu ytri kerfi. Auk þess felur starfið í sér að veita ráðgjöf og þjónustu við viðskiptavini.

Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun á sviði tölvunarfræði / hugbúnaðarverkfræði eða reynsla sem nýtist í starfi
Reynsla af NET C#, Javascript, HTML, CSS, SQL, ReactJS / VueJS kostur
Reynsla af samþættingu á móti vefþjónustum t.d. GraphQL / REST / SOAP kostur
Reynsla af kóðageymslum, t.d. Git kostur
Frumkvæði og drifkraftur
Sjálfstæði og fagleg vinnubrögð
Lausnamiðuð hugsun og jákvæðni
Færni í teymisvinnu
Auglýsing birt16. nóvember 2021
Umsóknarfrestur29. nóvember 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Guðrúnartún 10, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar