
Hugbúnaðarsérfræðingur
Lyfjastofnun auglýsir eftir sérfræðingi í starf í upplýsingatæknideild sem ber ábyrgð á umsjón og þróun hugbúnaðar sem tengist kjarnastarfsemi stofnunarinnar. Ein af áherslum Lyfjastofnunar er að vera stafræn stofnun sem nýtir sér gervigreind í daglegum störfum. Hugbúnaðarsérfræðingur er mikilvægur hlekkur í þeirri vegferð og fylgist með þróun og nýjungum sem heyra undir starfið og stuðla að umbótum.
Leitað er að manneskju sem er tæknilega fær, lausnamiðuð og hefur áhuga á að tileinka sér nýja þekkingu og færni. Viðkomandi þarf að hafa reynslu af Microsoft skýjalausnum og getu til að forrita á nútíma forritunarmáli. Það er kostur ef viðkomandi hefur forritað á móti island.is.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Greining, þróun og vörustjórnun á kerfum og ferlum Lyfjastofnunar
- Verkefnastjórnun
- Leiða undirbúning, greiningarvinnu og innleiðingu nýrra stafrænna lausna
- Samskipti við hagsmunaaðila innanhúss og utan
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólapróf á sviði tölvunarfræði, verkfræði eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Þekking og reynsla af forritun og hugbúnaðarþróun
- Sjálfstæði og öguð vinnubrögð
- Lipurð í mannlegum samskiptum, teymisvitund, jákvæðni og sveigjanleiki
- Vilji og hæfni til að tileinka sér nýja þekkingu og færni
- Góð tölvukunnátta og reynsla af Microsoft skýjalausnum
- Þekking á hugbúnaði s.s. Jira, Confluence, Microsoft CRM og SQL er kostur
Um Lyfjastofnun:
Lyfjastofnun er eftirsóknarverður vinnustaður sem hentar öllum kynjum. Helstu hlutverk stofnunarinnar eru að gefa út markaðsleyfi fyrir lyf í samvinnu við lyfjayfirvöld á Evrópska efnahagssvæðinu, hafa eftirlit með lyfjabúðum, lyfjafyrirtækjum, heilbrigðisstofnunum og söluaðilum lækningatækja á Íslandi, meta gæði og öryggi lyfja og tryggja faglega upplýsingagjöf um lyf og lækningatæki til heilbrigðisstarfsfólks og neytenda. Hjá Lyfjastofnun starfa 70 starfsmenn af 6 þjóðernum. Lyfjastofnun leggur áherslu á gott vinnuumhverfi, starfsþróun og framfylgir stefnu um samræmingu fjölskyldulífs og vinnu. Gildi Lyfjastofnunar eru: gæði – traust – þjónusta. Nánari upplýsingar um Lyfjastofnun má finna á: www.lyfjastofnun.is
Umsóknarfrestur er til og með 20. mars 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Lyfjastofnun hefur hlotið jafnlaunavottun og eru laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis og hlutaðeigandi stéttarfélags. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Nánari upplýsingar veita Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) og Thelma Kristín Kvaran ([email protected]) í síma 511 1225.








