

Reyndur sölumaður og geimfari
Við leitum að reyndum sölu-geimförum með reynslu og þekkingu við sölu í upplýsingatækni, geimförum með brennandi áhuga á sölu og markaðsmálum.
Sem Atmos sölu-geimfari ert þú hluti af teymi sem færð að móta og vinna að áhugaverðum og krefjandi söluverkefnum í íslensku, útlensku og geimlensku umhverfi sem snúa að skýjalausnum.
Atmos Cloud bíður uppá sveiganleika bæði á vinnutíma og vinnuaðstöðu.
Í teyminu okkar eru tölvuleikjahetjur, hlaupara, fjalla- og veghjólara, skíðamenn/brettamenn, fluguveiði amature-a, gym og heilsuræktar unnendur og styrktaraðilar, hestafólk, sundgarpa, kokka og fleiri tegundir af geimförum. Öll eigum við það þó sameiginlegt að vera hamingjusamt fjölskyldufólk. Allir hér eru að bíða eftir að verða vinur þinn!
- Heima internet og farsímanotkun
- Einstaklings og hópa hvatakerfi
- Sveigjanlegur vinnutími
- Sveiganleiki á vinnuaðstöðu
- Frábær vinnuaðstaða og skemmtilegt starfsfólk
- Frábært kaffi, drinks and snacks
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Frumkvæði og leiðtogahæfileikar
- 5+ ára þekking og reynsla við sölu í upplýsingatækni
- Microsoft 365 þekking
- Microsoft Azure þekking
- Góð þekking á Microsoft leyfismálum
- Hybrid og On-Prem þekking
- Hafa tæknilega sýn
- Reynsla af Microsoft öryggismálum
- Almenn upplýsingatækni þekking og/eða reynsla
- Frábær samskiptafærni og brennandi áhugi fyrir krefjandi verkefnum
- Jákvæðni
- Bílpróf (bíll til umráða er kostur)
- Önnur menntun og/eða reynsla sem nýtist útí geimnum
Við elskum skýjalausnir, til tunglsins og til baka. Við viljum einfalda upplýsingaræknirekstur fyrirtækja, auka skilvirkni, öryggi og kostnaðarvitund.
Atmos Cloud er ört vaxandi fyrirtæki sem tileinkar sér menningu stöðugrar umbóta og að verða betri í dag en í gær. Traust og áreiðanleiki er aðalsmerki okkar og við tryggjum vönduð vinnubrögð á settum tíma. Góð þjónustulund og léttleiki í samskiptum okkar skapar velkomið umhverfi þar sem öllum líður vel. Allir hafa rödd og skoðanir allra virtar. Við þjónustum alla og elskum alla, við erum geimfarar ekki geimverur.













