
BM Vallá
BM Vallá gegnir forystuhlutverki í framleiðslu á steypu, steinsteyptum vörum, múr- og flotblöndum fyrir íslenskan byggingariðnað. Umhverfismál og sjálfbær nýting auðlinda er rauður þráður í starfseminni og stefnir fyrirtækið að kolefnishlutleysi árið 2030.
Við leggjum mikinn metnað í að skapa jákvætt starfsumhverfi og góða vinnustaðamenningu. Sem fjölþjóðlegur vinnustaður fögnum við fjölbreytileika, ólíkum bakgrunni og menningu. Lögð er áhersla á góð starfsskilyrði, möguleika til starfsþróunar ásamt því að starfrækt er öflugt fræðslukerfi. Starfsfólk fær góðan hádegismat sér að kostnaðarlausu en greiðir aðeins hlunnindaskatt. Öflugt skemmtanastarf og margvíslegir viðburðir standa öllum til boða allt árið um kring og er ávallt lögð áhersla á fjölskylduvænar skemmtanir. Öryggismál, heilbrigði og vellíðan starfsfólks er í hávegum haft og hvetjum við starfsfólk til að leggja rækt við andlega og líkamlega heilsu.
BM Vallá er í eigu Eignarhaldsfélagsins Hornsteins ehf., sem á einnig Björgun-Sement. Hjá fyrirtækjunum starfar fjölbreyttur og samhentur hópur fólks að því að gera mannvirkjagerð á Íslandi umhverfisvænni.

Hönnuður á húseiningasvið
BM Vallá leitar að öflugu starfsfólki í hönnunarteymi húseiningasviðs fyrirtækisins, þar sem forsteyptar Smellinn húseiningar eru framleiddar og hannaðar.
Um er að ræða spennandi starfstækifæri fyrir rétta aðila í skemmtilegu og dýnamísku umhverfi. Starfstöðvar hönnunarteymis eru staðsettar á Höfðaseli 4, Akranesi og Bíldshöfða 7 í Reykjavík.
Um er að ræða 100% framtíðarstarf en skilgreindur vinnutími er frá kl. 8-16 eða samkvæmt samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Verkefnastjórnun einingaverkefna og samskipti við viðskiptavini
- Vinna við hönnun forsteyptra eininga og gerð verkteikninga fyrir framleiðsludeild
- Þátttaka í gerð burðavirkisteikninga
- Önnur tilfallandi verkefni í tækni- og hönnunardeild
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun í byggingafræði, iðnfræði, tæknifræði eða sambærileg menntun/reynsla
- Kunnátta og reynsla af tölvuteikningu í Autocad og Revit nauðsynleg
- Reynsla af gerð verkteikninga og byggingavinnu er kostur
- Mjög góð tölvukunnátta
- Jákvæðni og framúrskarandi lipurð í samskiptum
- Þjónustulund, frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
Auglýsing birt13. febrúar 2026
Umsóknarfrestur28. febrúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Höfðasel 4, 301 Akranes
Starfstegund
Hæfni
AutoCADByggingafræðingurIðnfræðingurTæknifræðingurVerkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Ráðgjafi tæknilausna
Sýn

Sérfræðingur í innivist
EFLA hf

Verkefnastjóri í viðhaldsráðgjöf
EFLA hf

Fagstjóri rafmagnssviðs
Háskólinn í Reykjavík

Háskólakennari eða lektor á vélasviði
Háskólinn í Reykjavík

Sumarstörf á Vestursvæði: þjónustudeild og tæknideild
Vegagerðin

Verkefnastjóri framkvæmda
Náttúruverndarstofnun

Sérfræðingur á teiknistofu
Norðurorka hf.

Sumarstörf á þróunar- og þjónustusviði
Vegagerðin

Verkfræðingur
Verkfræðistofa Bjarna Viðarssonar ehf. (VBV)

Verkfræðingur í Gæðasetri
Embla Medical | Össur

Verkefnastjóri byggingarframkvæmda og tæknimála / Project Manager Construction & Technical Ops
MýSköpun