
BM Vallá
BM Vallá gegnir forystuhlutverki í framleiðslu á steypu, steinsteyptum vörum, múr- og flotblöndum fyrir íslenskan byggingariðnað. Umhverfismál og sjálfbær nýting auðlinda er rauður þráður í starfseminni og stefnir fyrirtækið að kolefnishlutleysi árið 2030.
Við leggjum mikinn metnað í að skapa jákvætt starfsumhverfi og góða vinnustaðamenningu. Sem fjölþjóðlegur vinnustaður fögnum við fjölbreytileika, ólíkum bakgrunni og menningu. Lögð er áhersla á góð starfsskilyrði, möguleika til starfsþróunar ásamt því að starfrækt er öflugt fræðslukerfi. Starfsfólk fær góðan hádegismat sér að kostnaðarlausu en greiðir aðeins hlunnindaskatt. Öflugt skemmtanastarf og margvíslegir viðburðir standa öllum til boða allt árið um kring og er ávallt lögð áhersla á fjölskylduvænar skemmtanir. Öryggismál, heilbrigði og vellíðan starfsfólks er í hávegum haft og hvetjum við starfsfólk til að leggja rækt við andlega og líkamlega heilsu.
BM Vallá er í eigu Eignarhaldsfélagsins Hornsteins ehf., sem á einnig Björgun-Sement. Hjá fyrirtækjunum starfar fjölbreyttur og samhentur hópur fólks að því að gera mannvirkjagerð á Íslandi umhverfisvænni.

Eftirlitsfulltrúi afhendinga
BM Vallá leitar að ábyrgum og skipulögðum einstaklingi til starfa sem Eftirlitsfulltrúi afhendinga á Húseiningasviði sem er staðsett á Bíldshöfða 7,110 Reykjavík eða á Höfðaseli 2, Akranesi.
Við leitum að jákvæðum og framsýnum einstaklingi sem hefur reynslu úr byggingariðnaði eða verkstjórn og vill taka þátt í að tryggja að afhendingar, gæði og verklag á verkstöðum séu ávallt í samræmi við markmið BM Vallá.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast eftirlit með gæðum, verklagi og framkvæmdum á verkstöðum
- Tryggja að verklag, öryggisreglur og gæðakröfur BM Vallá séu uppfylltar
- Fylgjast með stöðu innkaupa, undirverktaka og hráefna á verkstöðum
- Upplýsingagjöf um framvindu, ábendingar og breytingar
- Tryggja að undirverktakar hafi aðgang að réttum gögnum, tækjum og búnaði
- Tryggja skilvirka upplýsingamiðlun í uppgjöri verkefna
- Stuðla að góðum samskiptum og samvinnu innan sviðsins
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi, sveinspróf í húsasmíði er æskileg
- Reynsla af verkstjórn, byggingariðnaði eða sambærilegum verkefnum
- Góð samskipta- og skipulagshæfni
- Tölvukunnátta og hæfni til að takast á við fjölbreytt verkefni
- Þekking á öryggis- og gæðakerfum er kostur
Auglýsing birt10. febrúar 2026
Umsóknarfrestur28. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Höfðasel 4, 301 Akranes
Bíldshöfði 7, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
AutoCADByggingafræðingurIðnfræðingurTæknifræðingurVerkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Orkuveitan leitar að sérfræðingi í boreftirliti
Orkuveitan

Framleiðslustjóri
Freyja

Jibby gæðakerfi – Sjálfstæði - Fjarvinna
Uppstreymi ehf

Sumarstarf í eftirliti fagaðila og rafmagnsöryggi hjá HMS
Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS)

Sumarstarf á eignadeild umhverfissviðs
Sumarstörf - Kópavogsbær

Tæknilegur verkefnastjóri
Farice ehf

Verkstjóri byggingaframkvæmda
Verkgarðar

Tækni- eða vélaverkfræðingur
First Water

Verkefnastjóri/-stýra framkvæmda
Landsnet hf.

Verkefnastjóri
Steypustöðin

Söludrifinn starfsmaður í sölu og afgreiðslu óskast
Málmsteypan

Verkefnastjóri
ÍAV