

Verkefnastjóri í rekstri og viðhaldi vindorku
Viltu tryggja rekstur vindorku framtíðarinnar?
Vindorka er ört vaxandi hluti af orkuvinnslu Landsvirkjunar og lykilþáttur í framtíðarsýn okkar um sjálfbæran heim, knúinn endurnýjanlegri orku. Við leitum að tveimur verkefnastjórum til starfa í deild vindorku á sviði vinds og jarðvarma.
Í starfinu berð þú ábyrgð á öruggum, skilvirkum og áreiðanlegum rekstri vindorkuvera og tengdra mannvirkja. Starfið er fjölbreytt og krefjandi og reynir á tæknilega færni, skipulagshæfni og samskipti við innri og ytri samstarfsaðila. Aðstaða verður upphaflega á framkvæmdasvæði Vaðölduvers, en stefnt er að opnun þjónustumiðstöðvar á Hellu haustið 2028. Þá eru verkefnastjórar einnig með aðstöðu í höfuðstöðvum Landsvirkjunar, að Katrínartúni 2.
Við hverju má búast?
· Umsjón með rekstri, eftirliti og viðhaldi vindorkuvera og tengdra mannvirkja
· Undirbúningur og eftirfylgni rekstrar- og framkvæmdaáætlana
· Vinna að auknu rekstraröryggi, endingu búnaðar og hagkvæmni í rekstri
· Eftirfylgni með rekstrar- og viðhaldssamningum
Hefur þú eftirfarandi hæfni og reynslu sem nýtist í starfi?
· Menntun sem nýtist í starfi, svo sem í verkfræði, tæknifræði, orkutækni, vélstjórn eða rafvirkjun
· Reynslu af rekstri og viðhaldi í orkuvinnslu, iðnaði eða sambærilegu
· Þekkingu á orkukerfum, háspennu eða öðrum stórum tæknikerfum
· Sjálfstæð, ábyrg og skipulögð vinnubrögð, ásamt hæfni til að taka tæknilegar ákvarðanir
· Góða enskukunnáttu
Hvernig vinnustaður er Landsvirkjun?
Landsvirkjun leggur ríka áherslu á fagmennsku, öryggi, sjálfbærni og stöðugar umbætur. Í þessu starfi færð þú tækifæri til að hafa bein áhrif á rekstraröryggi og nýtingu vindorku til framtíðar og vinna að mikilvægum innviðum samfélagsins. Við styðjum starfsfólk okkar með símenntun, sveigjanleika og góðu starfsumhverfi þar sem traust, jafnrétti og samvinna eru í forgrunni.
Hljómar þetta spennandi?
Sendu okkur umsókn með ferilskrá og kynningarbréfi þar sem þú segir frá reynslu þinni og áhuga á starfinu. Fyrirspurnir má senda á netfangið [email protected]
Íslenska
Enska










