Náttúruverndarstofnun
Náttúruverndarstofnun

Verkefnastjóri framkvæmda

Náttúruverndarstofnun óskar eftir að ráða skipulagðan og metnaðarfullan einstakling í verkefnastýringu framkvæmdaverkefna á friðlýstum svæðum. Verkefnin eru fjölþætt en felast einkum í uppbyggingu innviða og landvarðahúsa og utanumhaldi því tengdu. Verkefnastjórinn mun halda utan um framkvæmdir á svæðunum í nánu samstarfi við þjóðgarðsverði og svæðisstjóra. Starfinu fylgja mikil samskipti við framkvæmdaaðila og opinbera aðila. Um fullt starf er að ræða sem tilheyrir Þróunarsviði Náttúruverndarstofnunar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Verkefnastjórn framkvæmda vegna uppbyggingar innviða
  • Utanumhald verkefna í eigna- og verkefnaskrá stofnunarinnar
  • Fulltrúi Náttúruverndarstofnunar í verkefnum í umsjón Framkvæmdasýslunnar - Ríkiseigna
  • Leyfismál
  • Samningagerð, samskipti og eftirfylgni við verktaka og hönnuði
  • Gerð framkvæmda- og kostnaðaráætlana
  • Gerð og rýni útboðs- og verðtilboðsgagna
  • Samantekt og miðlun upplýsinga um framgang verkefna (t.d. PowerBI skýrslur o.þ.h)
  • Þarfagreining og forgangsröðun verkefna í samvinnu við svæðisstjóra um allt land

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði verkfræði eða tæknifræði
  • Haldbær reynsla af verkefnastýringu framkvæmdaverkefna
  • Þekking á skipulagsmálum sveitarfélaga er kostur
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og jákvætt viðhorf
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

Um Náttúruverndarstofnun:

Náttúruverndarstofnun hefur umsjón með um 130 náttúruverndarsvæðum þ.m.t. Snæfellsjökulsþjóðgarði og Vatnajökulsþjóðgarði. Eitt af okkar stærstu verkefnum í náttúruvernd er uppbygging innviða með bætt aðgengi, öryggi og verndun að leiðarljósi. Framundan eru margvísleg og spennandi verkefni á þessu sviði.

Vinnustaðurinn okkar er fjölbreyttur og lifandi með starfsemi vítt og breitt um landið. Við búum yfir mikilli sérfræðiþekkingu, höfum tækifæri til að þróast í starfi og ástunda endurmenntun. Vinnuvikan er 36 stundir.

Náttúruverndarstofnun starfar á 16 starfsstöðvum um landið sem eru: Hvolsvöllur, Geysir, Selfoss, Garðabær, Hellissandur, Hvanneyri, Patreksfjörður, Ísafjörður, Akureyri, Gígur í Mývatnssveit, Egilsstaðir, Ásbyrgi, Skaftafell, Höfn í Hornafirði, Kirkjubæjarklaustur og Reyðarfjörður.

Frekari upplýsingar um starfið:

Umsóknarfrestur er til og með 3. mars 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og skal henni fylgja ítarleg starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem fram kemur ástæða umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Við hvetjum áhugasöm til að sækja um óháð kyni og uppruna. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Gagnkvæmur reynslutími er sex mánuðir við ráðningu. Æskilegt er að verkefnastjórinn geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Nánari upplýsingar um starfið veita Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) í síma 511 1225 og Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Náttúruverndarstofnunar, í síma 556 6800.

Auglýsing birt17. febrúar 2026
Umsóknarfrestur3. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.Power BIPathCreated with Sketch.SamningagerðPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.TæknifræðingurPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Verkfræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar