Coca-Cola á Íslandi
Coca-Cola á Íslandi
Coca-Cola á Íslandi

Hlutastarf - Áfylling á Hvolsvelli fyrir Coca-Cola á Íslandi

Coca-Cola á Íslandi er alþjóðlegur vinnustaður með 80 ára sögu í íslensku samfélagi. Við bjóðum upp á spennandi og líflegan vinnustað þar sem unnið er markvisst að jafnréttismálum, vexti, öryggi og vellíðan starfsfólks.

Coca-Cola á Íslandi auglýsir eftir starfsmanni til að sinna áfyllingu á vörum fyrirtækisins í matvöruverslun á Hvolsvelli. Unnið er um klukkutíma á dag alla daga vikunnar. Þar sem um áfyllingu er að ræða, fylgir starfinu burður á framleiðsluvörum fyrirtækisins.

Helstu verkefni og ábyrgð:
• Áfylling og framsetning í matvöruverslun á Hvolsvelli
• Móttaka á pöntunum og eftirfylgni
• Tryggja nægt vöruframboð í verslun

Menntunar- og hæfniskröfur:
• Gilt bílpróf
• Þjónustulund og fagleg framkoma
• Reynsla af sölu og/eða þjónustu er kostur
• Stundvísi og reglusemi
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
• Drifkraftur og sveigjanleiki
• Góð færni í mannlegum samskiptum
• Góð íslenskukunnátta

Öll sem hafa náð 18 ára aldri og uppfylla hæfniskröfur auglýstra starfa eru hvött til að sækja um störf, óháð kyni, trúarbrögðum, litarhætti, uppruna, kynhneigð, aldri eða fötlun.

Umsóknarfrestur er til og með 19. janúar 2025.

Frekari upplýsingar veitir Stefán Ragnar Guðlaugsson sgudlaugsson@ccep.com en eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum ráðningarvef CCEP.

Auglýsing birt8. janúar 2025
Umsóknarfrestur19. janúar 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Stuðlaháls 1, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar