

Hjúkrunarfræðingur - Upplýsingamiðstöð HH
Vilt þú verða hluti af öflugum hópi hjúkrunarfræðinga á Upplýsingamiðstöð HH?
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir eftir hjúkrunarfræðingum til starfa við Upplýsingamiðstöð HH. Um er að ræða tímabundin störf í breytilegu starfshlutfalli á öllum tímum sólarhringsins. Vinnufyrirkomulag er samkomulagsatriði. Æskilegt er að viðkomandi hefji störf 1. febrúar nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Vegna aukinna umsvifa leitum við að hjúkrunarfræðingum sem eru tilbúnir að takast á við fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg verkefni á spennandi vettvangi sem er í sífelldri þróun. Upplýsingamiðstöðin leggur áherslu á þverfaglegt samstarf og góða teymisvinnu.
Ef þú hefur áhuga á fjölbreyttri vinnu og framþróun í heilsugæslunni þá hvetjum við þig til að sækja um.
- Veita símaráðgjöf og forflokka erindi til heilsugæslustöðva
- Sinna ferðamannaheilsuvernd
- Önnur þróunarverkefni í fjarheilbrigðisþjónustu innan heilsugæslunnar
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Sjálfstæði í starfi, skipulagningarhæfni og öguð vinnubrögð
- Reynsla af heilsugæslu er æskilegt
- Reynsla af störfum á heilbrigðisstofnun á landsbyggðinni er kostur
- Mikill sveigjanleiki og samskiptahæfni
- Geta til að vinna undir álagi
- Íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti skilyrði
- Góð tölvukunnátta skilyrði
- Heilsustyrkur
- Samgöngustyrkur
Íslenska
Enska
















