

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Hvammi
Heilsugæslan Hvammi auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi til starfa ótímabundið í 50-60% starf við heilsugæsluhjúkrun. Æskilegt er að viðkomandi hefji störf 1. nóvember nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Heilsugæslan Hvammi veitir íbúum í Kópavogi almenna, samfellda og aðgengilega heilbrigðisþjónustu. Mikil þróunarvinna er í gangi á stöðinni og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is ).
Meginstarfssvið er ung- og smábarnavernd og/eða skólahjúkrun sem og hjúkrunarmóttaka.
Ung og smábarnavernd eflir heilsu, vellíðan og þroska ungra barna með reglulegum heilsufarsskoðunum ásamt stuðningi og heilbrigðisfræðslu til fjölskyldna þeirra.
Hjúkrunarmóttakan sinnir fólki á öllum aldri og skiptist í opna móttöku, bókaða móttöku og símaráðgjöf. Í opinni mótöku er tekið á móti bráðaerindum, í bókaðri móttöku er tekið á móti öðrum erindum s.s. ferðamannaheilsuvernd og sárameðferð.
Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni.
· Íslenskt hjúkrunarleyfi
· Reynsla af heilsugæsluhjúkrun er æskileg
· Reynsla af fjölskylduhjúkrun er æskileg
· Áhugi og vilji til að vinna með börnum og fjölskyldum
· Þekking á forvarna- og heilsueflingarstarfi
· Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
· Reynsla og áhugi á teymisvinnu
· Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur
· Góð samskiptahæfni og sveigjanleiki
· Góð íslenskukunnátta og almenn tölvukunnátta
Heilsustyrkur
Samgöngustyrkur

















