

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Fjörður - Tímabundið starf
Heilsugæslan Fjörður leitar að hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á fjölbreyttum, krefjandi og skemmtilegum verkefnum í starfi sem er í stöðugri þróun. Um er að ræða 80-90% tímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. maí nk. eða eftir nánara samkomulagi.
Á heilsugæslustöðinni starfar sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og skemmtilegu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Mikil þróunarvinna er í gangi og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.
Heilsugæslan Fjörður býður upp á fjölskylduvænt vinnufyrirkomulag og gott starfsumhverfi. Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Starf hjúkrunarfræðings er fjölbreytt og víðtækt, allt frá símaráðgjöf til bráðaþjónustu. Hjúkrunarmóttakan sinnir fólki á öllum aldri. Í opinni móttöku er tekið á móti bráðaerindum og veitt smáslysaþjónusta. Í bókaðri móttöku er erindum sem eru ekki bráð sinnt, s.s. lyfjagjöfum, saumatöku, sárameðferð og smáaðgerðum.
Heilsueflandi móttaka felur í sér mat á heilsu skjólstæðinga og þörf þeirra á heilsueflingu. Lögð er áhersla á einstaklingsmiðaða nálgun, stuðning, fræðslu og eftirfylgni ásamt leiðsögn um heilbrigðiskerfið og þjónustuúrræði. Mikil teymisvinna er á milli fagstétta.
Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni.
-
Íslenskt hjúkrunarleyfi
-
Reynsla af skóla- og/eða heilsugæsluhjúkrun æskileg
-
Áhugi og vilji til að vinna með börnum og fjölskyldum
-
Áhugi á forvörnum og heilsueflandi starfi
-
Færni í fyrirlestrahaldi
-
Áhugi á réttindum barna
-
Sjálfstæði í starfi, skipulagningarhæfni og öguð vinnubrögð
-
Reynsla og áhugi á teymisvinnu
-
Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur
-
Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
-
íslenskukunnátta og góð almenn tölvukunnátta
Íslenska
Enska
























