Kjarkur endurhæfing
Kjarkur endurhæfing
Kjarkur endurhæfing

Hjúkrunarfræðingur

Sjálfsbjargarheimilið óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing til starfa með áherslu á endurhæfingu.

Um er að ræða 100% dagvinnustarf með möguleika á bakvöktum.

Sjálfsbjargarheimilið veitir þverfaglega einstaklingsmiðaða endurhæfingu fyrir hreyfihamlaða einstaklinga sem glíma við tauga- og heilaskaða.

Tekið er á móti einstaklingum á aldrinum 18-67 ára sem hafa lokið frumendurhæfingu en þurfa áframhaldandi endurhæfingu við að aðlagast breyttum aðstæðum og færni.

Markmið endurhæfingarinnar er að einstaklingar geti farið aftur út í lífið og tekið þátt miðað við sína færni.

Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Reynsla af endurhæfingarhjúkrun.
Fagleg vinnubrögð og frumkvæði í starfi.
Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni.
Sjálfstæði í starfi, skipulagningarhæfni og öguð vinnubrögð
Umsóknum skal fylgja náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Meta þörf, skipuleggja og veita heildræna hjúkrunarmeðferð eftir þörfum hvers og eins.
Styðja skjólstæðinga í endurhæfingu.
Skipuleggja og veita fræðslu til skjólstæðinga og aðstandenda.
Virk þátttaka í teymis- og umbótastarfi með öðrum heilbrigðisstéttum.
Að stuðla að og þróa aðferðir til að bæta þjónustuna
Auglýsing birt7. september 2022
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hátún 12, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HjúkrunarfræðingurPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar