Austurbæjarskóli
Í Austurbæjarskóla er lögð áhersla á hugarfar vaxtar, víðsýni, vellíðan og vilja til að gera stöðugt betur.
Markmið skólans er að auka þekkingu og leikni nemenda og gera þá að farsælum og sjálfstæðum einstaklingum. Einstaklingum sem hafa trú á eigin getu og takast óhræddir á við nýja hluti í viðleitni sinni við að finna hæfileikum sínum og hæfni farveg.
Grunnskólakennari íslenska og samfélagsgreinar. Tímabundið
Vegna tímabundinna forfalla er laust til umsóknar nú þegar starf kennara í Austurbæjarskóla. Um er að ræða allt að 50% starf til áramóta. Austurbæjarskóli er rótgróinn skóli í miðbæ Reykjavíkur. Í skólanum eru um 400 nemendur í 1.-10. bekk og um 70 starfsmenn.
Í Austurbæjarskóla er lögð áhersla á fjölbreytta kennsluhætti, leiðsagnarnám, samvinnu auk þess sem list- og verkgreinar skipa stóran sess í skólastarfinu. Lögð er áhersla á vinsamleg samskipti og vellíðan nemenda og starfsmanna. Í skólanum er öflugt foreldrafélag og er samvinna við foreldra og nærsamfélag gott.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipuleggja nám og kennslu nemenda í samráði við skólastjórnendur og samstarfskennara.
- Vinna í teymi með öðrum kennurum.
- Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennaramenntun og leyfisbréf kennara.
- Menntun og hæfni til að sinna bekkjarkennslu og starfa með börnum.
- Reynsla og áhugi á kennslu nemenda með fjölbreyttar þarfir.
- Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
- Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi.
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Góð íslenskukunnátta.
Auglýsing birt27. september 2024
Umsóknarfrestur11. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Barónsstígur 32, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)
Við leitum að leikskólakennara í teymið okkar
Arnarsmári
Deildarstjóri í Varmárskóla
Varmárskóli
Leikskólakennari óskast í Krikaskóla
Krikaskóli
Lausar stöður leikskólakennara
Leikskóladeild Seyðisfjarðarskóla
Aðstoðarskólastjóri Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Fjarðabyggð
Aðstoðarskólastjóri - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Skólastjóri Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Fjarðabyggð
Leikskólakennari / leiðbeinandi
Leikskólinn Hagaborg
Viltu koma að kenna okkur ?
Kópavogsskóli
Laus staða í Marbakka
Leikskólinn Marbakki
Kraftmikill og metnaðarfullur yfirdeildarstjóri óskast
Leikskólinn Sjáland
Kennari við Varmalandsdeild Grunnskóla Borgarfjarðar
Borgarbyggð