Grundarheimilin
Grundarheimilin
Grundarheimilin

Grundarheimilin óska eftir heilbrigðisgagnafræðing í starf verkefnastjóra.

Grundarheimilin eru fjölbreyttur og lifandi vinnustaður þar sem starfa 700 manns. Áhersla er lögð á góðan starfsanda, sterka liðsheild og hvetjandi starfsumhverfi.

Um nýtt starf er að ræða og þarf viðkomandi að vera tilbúinn til að móta starfið í samráði við forstjóra og samstarfsmenn.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Verkefnastjórn fjölbreyttra verkefna.
  • Utanumhald sjúkraskrár og innleiðing Sögu sjúkraskráarkerfis.
  • Samskipti við innri og ytri aðila varðandi tímabókanir.
  • Umsjón og frágangur skjala.
  • Skipulagning funda og fundaritun.
  • Aðstoð við utanumhald og skipulagningu læknaþjónustu.
  • Móttaka / símsvörun.

Menntunar og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf landlæknis sem heilbrigðisgagnafræðingur.
  • Reynsla af störfum sem heilbrigðisgagnafræðingur.
  • Íslenskukunnátta.
  • Góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund.
  • Metnaður og frumkvæði í starfi.
  • Geta til að vinna sjálfstætt og undir álagi.
  • Skipulagshæfileikar.
  • Almenn tölvukunnátta og þekking á sjúkraskráarkerfum.

Starfshlutfall er samkomulag. Greitt er eftir kjarasamningi viðeigandi stéttarfélags og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.

Á Grundarheimilunum vinnur stór og samheldinn hópur starfsmanna að því að hlúa að öldruðum af alúð. Vellíðan, virðing og vinátta eru höfð að leiðarljósi í samskiptum og lögð er áhersla á góðan vinnuanda, sjálfstæð vinnubrögð og heimilislegt umhverfi.

Unnið er eftir Eden hugmyndafræðinni.

Nánari upplýsingar um starfið veitir

Karl Óttar, forstjóri

[email protected]

Bjarki Steinn, yfirlæknir

[email protected]

Auglýsing birt27. febrúar 2026
Umsóknarfrestur11. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hringbraut 50, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar