

Sálfræðingur barna á HVE
Heilbrigðisstofnun Vesturlands auglýsir eftir sálfræðingi barna í 90% stöðu.
Staðsetning fer eftir samkomulagi en HVE hefur átta starfsstöðvar á Vesturlandi https://island.is/s/hve/starfsstodvar-hve. Þá er möguleiki á fjarvinnu að hluta með samkomulagi við yfirsálfræðing.
Um er að ræða fjölbreytt starf í þverfaglegu umhverfi sem býður upp á víðtæka möguleika á þróun í starfi fyrir sálfræðinga.
Nánari upplýsingar um sálfræðiþjónustu á heilsugæslustöðvum HVE má finna á https://island.is/s/hve/salfraedingar-hve
-
Mat, greining og meðferð á vanda barna að 18 ára aldri
-
Hópmeðferð, námskeiðahald, ráðgjöf og fræðsla.
-
Einstaklingsmiðuð gagnreynd meðferðarvinna.
-
Námskeiðshald, ráðgjöf og fræðsla
-
Þátttaka í þróun sálfræðiþjónustu heilsugæslunnar á Vesturlandi
-
Leyfi frá landlækni til þess að starfa sem sálfræðingur á Íslandi.
-
Skilyrði að umsækjendur séu með staðfest starfsleyfi landlæknis.
-
-
Þekking og reynsla af gagnreyndum sálfræðimeðferðum
-
Reynsla af notkun sálfræðilegra prófa og greiningartækja æskileg.
-
Samskiptahæfni og sveigjanleiki.
-
Ökuréttindi.
-
Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
Íslenska
Enska










