

Garðabær auglýsir eftir ráðgjafa í málefnum fatlaðs fólks
Á velferðarsviði Garðabæjar starfar samhentur hópur fólks með fjölbreytta menntun og starfsreynslu. Á sviðinu er lögð áhersla á að þjónustan einkennist af fagmennsku, áreiðanleika og jákvæðni. Á velferðarsviði er veitt margþætt þjónusta til einstaklinga og fjölskyldna ásamt því sem starfsfólk vinnur að framþróun þeirra málaflokka sem tilheyra sviðinu. Undir sviðið heyrir m.a. félagsþjónusta, jafnréttismál, barnavernd, farsæld barna, þjónusta við fatlað fólk, stuðnings- og öldrunarþjónusta og móttaka flóttafólks. Ráðgjafi í málefnum fatlaðs fólks vinnur að fjölþættum verkefnum í þjónustu við einstaklinga, börn og fjölskyldur þeirra og í þverfaglegum teymum.
Um er að ræða 80-100% starfshlutfall í góðu starfsumhverfi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
- Ráðgjöf og stuðningur við fötluð börn og fjölskyldur þeirra og við fullorðið fatlað fólk
- Mótttaka, greining, úrvinnsla erinda og umsókna um þjónustu
- Mat á þörf fyrir þjónustu, úrræði og gerð þjónustu- og stuðningsáætlana
- Fyrirlögn mála/umsókna fyrir teymisfundi
- Er í hlutverki málstjóra á grundvelli laga um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna, þegar það á við
- Er málstjóri í málum þar sem þörf er á samhæfðri þjónustu vegna fötlunar
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu innan og utan sveitarfélags
- Starfsréttindi í þroskaþjálfun eða í félagsráðgjöf
- Þekking og reynsla af vinnu með fötluðu fólki er nauðsynleg
- Framúrskarandi samstarfs- og samskiptahæfni
- Frumkvæði, skipulagshæfni, sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð tölvukunnátta
- Góð íslenskukunnátta bæði í töluðu og rituðu máli á stigi C-1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Góð enskukunnátta bæði í töluðu og rituðu máli B-2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Þekking og reynsla af velferðarmálum sveitarfélaga er kostur
Hér má sjá þau hlunnindi sem starfsmönnum Garðabæjar býðst.













