Leikskólinn Seljaborg
Leikskólinn Seljaborg

Sérkennsla og stuðningur Seljakot

Í Seljakoti dvelja 84 börn á fimm deildum. Nýlega var tekin í notkun ný starfsmannaálma og hreyfisalur. Starfsaðstæður bæði kennara og barna í Seljakoti eru til fyrirmyndar.

Í starfi okkar með börnunum er meðal annars horft til hugmyndafræði Reggio Emilia á Ítalíu sem er þekkt fyrir skapandi starf og gagnrýna hugsun. Leiðarljós leikskólans er frumkvæði - sköpun - tjáning.

Leikskólinn er staðsettur við Rangársel í Seljahverfi. Í bakgarðinum er Seljadalur þar sem umhverfið er afar fallegt og fjölbreytt í óspilltri náttúrunni. Dalurinn býður upp á ótal kennslumöguleika með börnum þar sem m.a. má finna læki, tré, gróður og dýralíf.

Það eru fjölbreytt og skemmtileg verkefni framundan í Seljakoti. Starfsmannahópurinn er samheldinn og innan hans ríkir sérstaklega góður starfsandi. Óskað er eftir leikskólakennurum sem eru tilbúnir til að taka þátt og þróa starfið en frekar og vera um leið hluti af heildarsýn skólans og því faglega starfi sem þar fer fram.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita barni þjálfun og vinna í samvinnu við sérkennslustjóra að gerð einstaklingsnámskrár.
  • Eiga í samvinnu við fagaðila, foreldra og aðra ráðgjafa.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leikskólakennaramenntun, þroskaþjálfaramenntun eða önnur sambærileg menntun.
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum kostur
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði, gleði og sköpun í starfi
  • Faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Ókeypis í sundlaugar Reykjavíkurborgar með S-kortinu
  • Árlegur heilsuræktarstyrkur þegar þú hefur starfað í 6 mánuði
  • Ókeypis bókasafnskort og frítt á söfn með Menningarkortinu
  • 36 stunda vinnuvika.
  • Afsláttur af leikskólagjöldum í Reykjavík
Auglýsing birt26. maí 2025
Umsóknarfrestur8. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Rangársel 15, 109 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar