Frístundaleiðbeinendur - Norðlingaskóli
Norðlingaskóli óskar eftir starfsfólki í frístundarheimilið Klapparholt veturinn 2024-2025.
Skóla-og frístundasvið Reykjavíkurborgar starfrækir frístundaheimili við alla grunnskóla borgarinnar. Á frístundaheimilunum er boðið upp á fjölbreytt tómstundastarf þegar hefðbundnum skóladegi 6-9 ára barna lýkur.
Þar starfa frístundaráðgjafar og frístundaleiðbeinendur og eru þeir lykillinn að því að veita íbúum fyrsta flokks þjónustu. Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar leggur áherslu á starfsþróun og vellíðan starfsfólks.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-9 ára börn.
Leiðbeina börnum í leik og starfi.
Samráð og samvinna við börn og annað starfsfólk.
Samskipti og samstarf við foreldra, starfsfólk skóla og aðra sem koma að frístundaheimilinu.
Hæfniskröfur:
Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
Áhugi á að vinna með börnum.
Frumkvæði og sjálfstæði.
Færni í samskiptum.
Í boði eru hlutastörf 50% eftir hádegi. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri. Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sameykis.
Starfshlutfall: 50%
Umsóknarfrestur: 17.09.2024
Ráðningarform: Timabundin ráðning
Nafn sviðs: Skóla- og frístundasvið
Nánari upplýsingar um starfið veitir Pétur Finnbogason, netfangið er petur.finnbogason@reykjavik.is
Sækið um á Frístundaleiðbeinendur - Norðlingaskóli | Reykjavik