Salaskóla vantar stuðningsfulltrúa og frístundaleiðbeinanda
Við í Salaskóla óskum eftir að ráða stuðningsfulltrúa og frístundaleiðbeinenda í tímabundið starf. Gæti hentað vel sem hlutastarf með námi eða tímabundið fyrir þá sem byrja í námi um áramót.
Salaskóli tók til starfa haustið 2001 og er grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. árgangi. Í Salaskóla eru um 530 nemendur og um 100 starfsmenn. Í skólanum er faglegt og metnaðarfullt starf undir einkunnarorðunum vinátta - virðing - samstarf, þar ríkir góður starfsandi og boðið er upp á gott starfsumhverfi. Í störfum stuðningsfulltrúa og frístundaleiðbeinenda felst stuðningur við nemendur í námi og leik. Fyrri hluta dags er unnið með nemendum í kennslustundum og eftir hádegi í frístundastarfi – til greina kemur að ráða starfsmenn í fullt starf eða hlutastarf sem væri þá ýmist fyrir eða eftir hádegi.
- Stuðningur við nemendur í fjölbreyttum aðstæðum í námi og leik, inni og úti, m.a. í íþróttum og sundi
- Vinna samkvæmt stefnu skólans, áætlunum og verkefnalýsingum
- Samstarf við alla aðila skólasamfélagins um hagsmuni nemenda
- Hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði og umburðarlyndi
- Stundvísi og reglusemi
- Vera tilbúin að vinna eftir stefnu skólans og geta tekið leiðsögn
- Frumkvæði og jákvæðni
- Góð tök á íslensku bæði í máli og riti
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.