BSRB
BSRB
BSRB

Framtíðarvinnumarkaður og menntamál

Sérfræðingur á sviði framtíðarvinnumarkaðar

BSRB óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa. Um er að ræða nýtt og spennandi starf þar sem meginverkefnið verður að vinna að stefnumótun BSRB í menntamálum til dæmis varðandi framtíðarvinnumarkaðinn og fjórðu iðnbyltinguna.

Starfið er tímabundið til 1. október 2021. Það heyrir undir framkvæmdastjóra BSRB og krefst samvinnu við aðra sérfræðinga á skrifstofu bandalagsins auk samskipta við aðildarfélög þess.

Sérfræðingurinn annast greiningar, safnar saman og tryggir gott aðgengi að upplýsingum um hvaða breytingar kunni að verða á störfum félagsmanna aðildarfélaga BSRB ásamt upplýsingum um fræðslustofnanir aðildarfélaganna og vinnumarkaðarins sem leggur grunn að stefnumótun BSRB þegar kemur að starfs- og símenntun, framhaldsfræðslu og framtíðarvinnumarkaðnum.

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólapróf sem nýtist í starfi.
Þekking og/eða reynsla af menntamálum og vinnumarkaðsmálum.
Þekking á starfsemi félagasamtaka og málefnum stéttarfélaga er kostur.
Greiningarhæfni og gott vald á framsetningu upplýsinga.
Góð íslensku- og enskukunnátta og hæfni til tjáningar í ræðu og riti.
Góð samskiptahæfni og færni til að taka þátt í teymisvinnu.
Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Verkefni á sviði framtíðarvinnumarkaðar og menntamála.
Greining á fræðslumálum og framtíðarvinnumarkaðnum.
Samskipti við aðila vinnumarkaðarins og umsagnir um þingmál í samráði við formann og framkvæmdastjóra.
Fræðsla, ráðgjöf og almenn upplýsingamiðlun um menntamál.
Seta í ýmsum nefndum og ráðum samkvæmt ákvörðun stjórnar BSRB.
Auglýsing birt8. ágúst 2020
Umsóknarfrestur23. ágúst 2020
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Grettisgata 89, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StefnumótunPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar