Sturlaugur Jónsson og Co.
Sturlaugur Jónsson og Co.

Framkvæmdastjóri

Við leitum að öflugum framkvæmdastjóra til að sinna daglegum rekstri og að leiða áframhaldandi uppbyggingu fyrirtækisins. Stór hluti starfsins eru samskipti við viðskiptavini og umsjón sölumála.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirumsjón með daglegum rekstri fyrirtækisins.
  • Stjórnun og stýring viðskiptasambanda.
  • Samskipti við viðskiptavini, samstarfsaðila og hagsmunaaðila. 
  • Kostnaðareftirlit og gerð verkferla.
  • Samningagerð við viðskiptavini og birgja.
  • Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi.
  • Þekking á vél- og tæknibúnaði nauðsynleg.
  • Þekking á útgerð og/eða iðnaði æskileg. 
  • Farsæl og árangursrík reynsla af stjórnun, stefnumótun og rekstri. 
  • Drifkraftur, jákvæðni og framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum.
  • Góð þekking á reikningshaldi, uppgjörum og áætlanagerð.
  • Sjálfstæð vinnubrögð og metnaður til að ná árangri.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
Auglýsing birt27. september 2023
Umsóknarfrestur10. október 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Selhella 13, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar