First Water
First Water
First Water

Tæknimaður í vinnslu

First Water leitar að iðnmenntuðum eða tæknilega sterkum og handlögnum einstaklingi í framtíðarstarf við laxavinnslu félagsins í Þorlákshöfn.

Í vinnslunni er fjölbreyttur véla- og tæknibúnaður og leitum við að liðsfélaga sem hefur áhuga á viðhaldi, bilanagreiningu og umbótum. Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni og tækifæri til að hafa áhrif á þróun búnaðar og verklags í vaxandi starfsemi.

Helstu verkefni

  • Viðhald, þjónusta og bilanagreining á búnaði vinnslunnar, meðal annars slægingarvél, færiböndum, flokkara og hreinsikerfum.
  • Skipulag og framkvæmd fyrirbyggjandi viðhalds ásamt skráningu í viðhaldskerfi.
  • Samskipti við þjónustuaðila og birgja vegna viðgerða og varahluta.
  • Þátttaka í uppsetningu búnaðar og umbótaverkefnum í samstarfi við starfsfólk vinnslunnar.

Menntun og hæfni

  • Iðnmenntun sem nýtist í starfi, svo sem vélvirkjun, bifvélavirkjun eða sambærileg menntun. Góð reynsla af viðgerðum og viðhaldi kemur einnig til greina.
  • Reynsla af viðhaldi véla og tæknibúnaðar er kostur, sérstaklega úr fisk- eða matvælavinnslu.
  • Reynsla af viðhaldskerfum, svo sem MaintainX, er kostur.
  • Hæfni til að greina bilanir og finna lausnir.
  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og áhugi á umbótum.
  • Góð samskiptahæfni og vilji til að vinna með öðrum.
  • Rík öryggisvitund og vönduð vinnubrögð.

Nánari upplýsingar veitir Stefán Ágústsson, rekstrarstjóri, í tölvupósti á [email protected].

Umsóknarfrestur er til og með 6. desember 2026. Farið verður yfir umsóknir eftir því sem þær berast.

First Water er íslenskt fyrirtæki sem vinnur að uppbyggingu laxeldis á landi og nýtir náttúruauðlindir Íslands með sjálfbærni að leiðarljósi. Öflugt starfsfólk er undirstaða uppbyggingarinnar og við leggjum áherslu á fagmennsku, samvinnu og stöðugar umbætur.

Auglýsing birt20. nóvember 2026
Umsóknarfrestur6. desember 2026
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Þorlákshöfn
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar