

Véla- og tækjavörður
Tækniskólinn leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi í starf véla- og tækjavarðar. Við leitum að fjölhæfum einstaklingi sem er tilbúinn að ganga í verkefnin og hefur gaman af því að taka til hendinni.
· Annast daglega umsjón og eftirlit með vélum og tækjum
· Viðhald og viðgerðir á vélum og tækjum skólans
· Öryggiseftirlit með vélum og tækjum skólans
· Skráning viðhalds véla og tækja í húsumsjónar- og viðhaldskerfi skólans
· Áætlanagerð og eftirfylgni í viðhaldsmálum véla og tækja
· Menntun í vélstjórn, vélfræði, vélvirkjun eða rafvélavirkjun
· Góð tölvukunnátta
· Rík öryggisvitund
· Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð vinnubrögð
· Jákvætt viðhorf, þjónustulund og lipurð í samskiptum
· Góð íslensku – og enskukunnátta
· Hreint sakavottorð
Íslenska
Enska










