

Framendaforritari í Tækniráðgjöf
Deloitte er leiðandi þjónustuveitandi á sviði endurskoðunar og reikningsskila, upplýsingatækniráðgjafar, fjármálaráðgjafar, áhætturáðgjafar, skatta– og lögfræðiráðgjafar og tengdrar þjónustu. Alþjóðlegt net aðildarfélaga okkar og tengdra félaga spannar meira en 150 lönd og landsvæði (sameiginlega vísað til sem „félög Deloitte"). Hjá Deloitte starfa um 457.000 sérfræðingar sem stefna saman að því að veita ávallt framúrskarandi þjónustu, þar af eru 360 á Íslandi.
Starfið
Við leitum að framendaforritara með reynslu í faginu og áhuga á ráðgjöf, sem getur hlaupið hratt með okkur í núverandi og komandi verkefnum.
Í framenda notum við m.a.
- TypeScript, Javascript, React, Next.js, GraphQL
- GitHub, Docker
- Cypress e2e
- Storybook
- Þekking á REST, JSON APIs og GraphQL
Forritarar eru hluti af Tækniráðgjafarsviði Deloitte. Við vinnum þvert á svið hérlendis og með Deloitte erlendis. Á sviðinu starfar úrvals lið sérfræðinga með fjölbreyttan bakgrunn sem leggja sig fram í þjónustu við viðskiptavini.
- Þróun hugbúnaðar í samræmi við greiningu og hönnun
- Fást við greiningu á villum og úrlausn þeirra
- Kóðarýni hjá og með öðrum forriturum
- Fylgjast vel með þróun og tækninýjungum
- Vinna með breiðum og færum hópi reyndra ráðgjafa hérlendis og/eða erlendis
- Háskólamenntun á sviði verk-, tölvunar-, kerfisfræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Tveggja til þriggja ára reynsla af forritun
- Nákvæmni og metnaður til að skila af þér góðu verki
- Þú hefur gaman af því að takast á við og leysa áskoranir
- Þú getur unnið sjálfstætt en virkar vel í teymi enda býrðu yfir samskiptafærni
- Átt auðvelt með að fara á milli verkefna og halda nokkrum boltum á lofti í einu
- Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat.
- Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf
- Fyrirmyndar aðbúnað starfsfólks í nýjum höfuðstöðvum fyrirtækisins á Dalvegi
- Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum
- Fjölbreytt áhugamál samstarfsfélaga þvert á félagið t.d. hlaupahópur, fótbolti í hádeginu, og leikjaherbergi svo eitthvað sé nefnt













