Nova
Nova
Nova

Framendaforritari í hugbúnaðarþróun Nova

Við leitum að framendaforritara til að ganga til liðs við stækkandi hugbúanaðarþróunarteymi Nova. Um er að ræða fjölbreytt hlutverk í teymi sem sér um þróun og rekstur starfrænna lausna fyrir viðskiptavini og starfsmenn Nova.

Sem framendaforritari munt þú taka virkan þátt í þróun á veflausnum sem styðja við sölu og þjónustu á vörum á fjarskiptamarkaði, taka þátt í teymisvinnu við úrlausn og skipulagningu verkefna, koma að vöruþróun, samskiptum við hönnuði, kröfuhafa og aðra leikmenn á dansgólfinu.

Þú munt

  • taka þátt í þróun og uppbyggingu á sölu-, áskrifta- og viðskiptamannakerfum Nova
  • sinna skipulagi verkefna í samstarfi við kröfuhafa, vörustjóra og aðra í teyminu
  • koma að vöruþróun á fjarskiptamarkaði
  • taka ábyrgð á því að koma lausnum í rekstur

Þú hefur

  • metnað fyrir því að skrifa góðan, viðhaldanlegan kóða
  • áhugi á notendaupplifun og notandaprófunum
  • þekkingu á helstu hönnunarmynstrum hugbúnaðar
  • getu til að taka ábyrgð og leiða verkefni tæknilega
  • áhuga á að miðla þekkingu og reynslu til teymismeðlima
  • vilja til að finna bestu lausnina

Háskólapróf í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða sambærilegt nám eða reynsla er kostur.

Núverandi tæknistakkur samanstendur m.a. af React, React Native, TypeScript, Next.js, Mobx, Apollo, GraphQL, Storybook, CSS modules og Vanilla extract. Rétta manneskjan er einhver sem finnst það hljóma eins og drauma umhverfi til að vinna í og þróa áfram með metnaðarfullu teymi.

Nova er skemmtilegur og sveigjanlegur vinnustaður þar sem mikið er lagt upp úr góðum starfsanda og sjálfstæðum vinnubrögðum. Við leggjum gríðarlega áherslu á sterka liðsheild! Svo ef þú ert hress og lífsglöð manneskja sem vilt umgangast glás af lífsglöðu hæfileikafólki, vaxa og dafna í spennandi umhverfi, vinna fjölbreytt starf og hafa nóg að gera, þá viljum við endilega fá þig í hópinn!

Auglýsing birt4. júlí 2022
Umsóknarfrestur15. ágúst 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Lágmúli 9, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.CSSPathCreated with Sketch.ReactPathCreated with Sketch.SCRUMPathCreated with Sketch.TypeScriptPathCreated with Sketch.Vefforritun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar