

Framendaforritari
atNorth leitar að brautryðjendum til að starfa í heimi gervigreindar og gagnavera. Við höfum sett okkur markmið um að vera leiðandi í uppbyggingu innviða fyrir gervigreind á alþjóðavísu og nú setjum við saman teymi sem mun sjá um að smíða þá innviði.
atNorth óskar eftir framendaforritara með ástríðu fyrir upplifun viðmóta í teymið. Störfin eru í gagnaverum okkar á Íslandi en við bjóðum starfsfólki okkar tækifæri til að ferðast um Norðurlöndin við að setja upp öflug tölvukerfi fyrir gervigreind í gagnaverum atNorth.
Þetta starf er nýtt, með starfsstöð í Hafnarfirði, er framtíðarráðning og fullt stöðugildi.
atNorth setur sér metnaðarfull markmið um upplifun viðskiptavina og hluti af því er að hámarka upplifun í viðmótum og framendakerfum.
- Móta og þróa framenda vefkerfa atNorth
- Tryggja góða upplifun viðmóta
- Skrifa leiðbeiningar fyrir notendur
- Fylgjast með nýju og góðum leiðum sem bæta upplifun og gæði hugbúnaðar
- Bilanagreining og úrræðaleit á vandamálum viðskiptavina
Þú þarft að þekkja tól sem nýtast við þróun viðmóta og framendaforritun. Það er krafa um háskólanám sem nýtist starfi. Við erum að vinna í git og git workflows, verkefnastýrum með Agile og notum CI/CD við stöðuga þróun hugbúnaðar.
- Grunnnám af háskólastigi sem nýtist starfinu
- Þriggja ára reynsla eða meira
- Mikil færni í ensku við lestur og skrif
- Javascript (Angular, React, Vue.js)
- Þekking af SQL, Postgres, REST, GraphQL, Express er kostur
atNorth er stöndugt fyrirtæki stofnað árið 2009 og er brautryðjandi í hönnun, uppbyggingu og rekstri hátæknigagnavera á Íslandi, Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku. Viðskiptavinir atNorth eru alþjóðleg fyrirtæki og stofnanir sem starfa í heilbrigðisgeiranum, í fjármálaiðnaði, veðurfræði eða við rannsóknir sem nýta þjónustu atNorth til þess að vinna gögn með hámarks afköstum á hagkvæman og umhverfisvænan hátt.
atNorth er samheldin hópur sem tekur árangursmiðaðar ákvarðanir til að byggja upp sinn vinnustað. atNorth er ábyrgur vinnustaður og býður upp á fjölskylduvænt umhverfi. Hjá okkur færðu góð vinnutæki og aðbúnað til að geta unnið þína vinnu.
Helstu kostir þess að vinna hjá atNorth eru:
- Heilsumiðað hugarfar með markmið um jafnvægi starfs og einkalífs
- Íþróttastyrkur til rækta líkama og sál
- Skemmtinefnd sem heldur stuðinu gangandi
- Veitingaþjónusta send á vinnustaðinn
- Fjarskiptapakki og símastyrkur
- Alþjóðlegur vinnustaður með fjölmenningu
- Tækifæri til þess að ferðast til annarra gagnavera til að miðla þekkingu
Höfuðstöðvar atNorth eru í Hafnarfirði, og fyrirtækið rekur sjö gagnaver á Norðurlöndum. Á árinu 2024 verða tvö ný gagnver tekin í notkun í Finnlandi og Danmörku. Frekari upplýsingar um atNorth er að finna á vefsíðu fyrirtækisins atnorth.com og eins má fylgja atNorth á Linkedin og Facebook.
Enska










