
Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg er fjölmennasta sveitarfélagið á Suðurlandi. Það varð til við sameiningu Eyrarbakkahrepps, Sandvíkurhrepps, Selfossbæjar og Stokkseyrarhrepps. Sveitarfélagið hefur vaxið ört síðastliðin ár og telur nú tæplega 12.000 íbúa. Þar er miðstöð þjónustu á Suðurlandi, góðir skólar ásamt öflugu íþrótta-, félags- og menningarlífi. Starfsmenn sveitarfélagsins eru um 1000 og lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri, þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Forstöðumaður yfir heimilum fyrir börn
Leitað er að öflugum forstöðumanni til starfa á heimili fyrir fötluð börn. Um er ræða 100% starf sem felur í sér yfirumsjón með tveimur heimilum fyrir börn og mikilvægt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Leitað er að einstaklingi sem er tilbúinn að vinna eftir þjónandi leiðsögn með áherslu á sjálfstætt líf. Heimilið er rekið af fjölskyldusviði Árborgar en tilheyrir Byggðarsamlagi Bergrisans Bs.
Um er að ræða 100% starf.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa tæplega 13.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hefur forystu, stýrir og ber ábyrgð á að unnið sé samkvæmt lögum og reglugerðum í málefnum fatlaðs fólks.
- Fjárhagsleg ábyrgð á rekstri heimilins ásamt stjórnun og starfsmannamálum.
- Gerð starfsáætlana, vaktaskipulags og framkvæmdaáætlana.
- Innkaup vegna reksturs og umsjón eignar.
- Að vinna eftir kröfulýsingu heimilisins.
- Ábyrgð á velferð og þjónustu við íbúa, stýri að þeir fái þá þjónustu og þjálfun sem nauðsynleg er til að efla sjálfstæði þeirra og færni og þeim nýtist almenn þjónusta.
- Samskipti við helstu samstarfsaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
- Þroskaþjálfamenntun og starfsleyfi sem þroskaþjálfi eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi svo sem starfsréttindi sem félagsráðgjafi.
- Reynsla af stjórnunarstörfum og mannauðsstjórnun er skilyrði.
- Þekking á málefnum fatlaðs fólks skilyrði.
- Rík þjónustulund, lipurð og færni í mannlegum samskiptum.
- Góð samskiptahæfni, leiðtogahæfni og hæfni til að vinna faglega með börnum, foreldrum og samstarfsaðilum.
- Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð.
Auglýsing birt7. október 2025
Umsóknarfrestur17. október 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Austurvegur 2, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
LeiðtogahæfniMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Ráðgjafi í kjara- og réttindamálum
Sameyki

Ráðgjafi á Suðurlandi
Vinnumálastofnun

NPA aðstoðarfólk á Selfossi
NPA Setur Suðurlands ehf.

Ráðgjafi í málefnum fatlaðs fólks og eldri borgara
Hafnarfjarðarbær

Sérkennari eða þroskaþjálfi - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær

Sérfræðingur á heimili fyrir fatlað fólk - Steinahlíð
Hafnarfjarðarbær

Leikskólinn Akrar óskar eftir starfsmanni í stuðning
Leikskólinn Akrar

Leikskólakennari / leiðbeinandi Seljaborg
Leikskólinn Seljaborg

Ráðgjafi
Vinakot

Félagsráðgjafi í barnateymi velferðarþjónustu Árborgar
Sveitarfélagið Árborg

Sérkennsla í Ægisborg
Leikskólinn Ægisborg

Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast í Dal
Dalur