
Múlaþing
Múlaþing er sveitarfélag á Austurlandi sem samanstendur af fjórum byggðarkjörnum; Borgarfirði, Djúpavogi, Egilsstöðum og Seyðisfirði. Sveitarfélagið er eitt víðfeðmasta sveitarfélag landsins, en það spannar rúm 10% af flatarmáli Íslands.
Íbúar Múlaþings eru um það bil 5300 talsins og af þeim starfa að jafnaði hjá sveitarfélaginu í kringum 630 manns. Starfsemi sveitarfélagsins er mjög fjölbreytt en innan þess er allt frá skrifstofustörfum í stjórnsýslu sveitarfélagsins og sólarhrings umönnunarþjónustu - yfir í rekstur hafnarmannvirkja, leik- tónlist- og grunnskóla, skólaþjónustu, félagsþjónustu, slökkviliða, hæfingastöðvar, vinnuskóla, bókasafna, menningarmiðstöðva, dagþjónustu aldraðra, mötuneyta, þjónustumiðstöðva, íþróttamiðstöðva og sundlauga. Störf inan sveitarfélagsins snerta þannig samfélagið allt á einn eða annan hátt.
Stjórnsýsla Múlaþings skiptist í þrjú svið en þau eru stjórnsýslu- og fjármálasvið, fjölskyldusvið og umhverfis- og framkvæmdarsvið. Undir þessi svið falla síðan öll störf hjá sveitarfélaginu.
Múlaþing vill skapa góðan, eftirsóknarverðan og öruggan vinnustað með hamingjusömu starfsfólki sem ber virðingu fyrir hvert öðru. Sveitarfélagið leggur áherslu á heilbrigði og vellíðan og að vinnustaðurinn sé laus við hvers kyns ofbeldi. Þá vill sveitarfélagið laða að fólk með þekkingu og efla starfsþróun. Sveitarfélagið leggur áherslu á að taka vel á móti nýju starfsfólki. Með þjálfun starfsfólks og markvissri endurgjöf stjórnenda er stuðlað að frekari þekkingu og færni sem skilar betri árangri og skapar jákvæð tengsl.
Múlaþing vill veita góða þjónustu og skapa traust með faglegum vinnubrögðum og verklagi. Með vel skilgreindum verkferlum skal lágmarka mistök og koma í veg fyrir mismunun. Vinnustaðurinn Múlaþing er framsækinn, tekst á við áskoranir og skipar sér í forystu þegar kemur að þróun í samfélaginu. Í stóru samfélagi myndast ýmis tækifæri og er starfsfólki Múlaþings treyst til að fylgja eftir þeim hugmyndum sem kunna að vakna.

Forstöðuaðili skíðasvæðisins í Stafdal
Starf á skemmtilegasta skíðasvæði landsins!
Laust er til umsóknar starf forstöðuaðila skíðasvæðisins í Stafdal.
Í starfinu felst dagleg umsjón með rekstri skíðasvæðisins, starfsmannahald, samskipti við notendur og kynningarstarf.
Leitað er að aðila með reynslu af útivist og skíðamennsku með brennandi áhuga og drifkraft til þess að vinna að þróun og utanumhaldi svæðisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
Færni í mannlegum samskiptum, góð samstarfshæfni og jákvætt viðmót.
Sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði og drifkraftur.
Hæfni til að miðla upplýsingum í töluðu og rituðu máli og góð þekking á tölvum og netmiðlum.
Hæfni til að bregðast við óvæntum aðstæðum og vilji til að taka þátt í breytingum.
Menntun sem nýtist í starfi.
Geta og réttindi til troðslu á skíðasvæðinu kostur.
Kunnátta í skyndihjálp er kostur.
Reynsla af stjórnun kostur.
Reynsla af vinnu með vinnuvélar og reynsla af viðgerðum og viðhaldi tækjabúnaðar kostur.
Helstu verkefni og ábyrgð
Opnun svæðisins og daglegan rekstur þess út veturinn sem og frágang á svæðinu.
Lyftuvörslu og önnur störf sem þarf að sinna.
Umsjón með starfsmannahaldi, skipulagi og verkaskiptingu milli starfsfólks.
Að öryggiskröfum skíðasvæða sé fullnægt.
Kynningu málefna skíðasvæðisins á heimasíðu sveitarfélagsins og á samfélagsmiðlum.
Samstarf vegna kynningar- og ferðamála.
Rekstur skíðaleigu og fleira sem henni fylgir.
Yfirumsjón með viðhaldi tækja og búnaðar.
Starf við þjónustumiðstöð á sumrin.
Auglýsing birt25. ágúst 2022
Umsóknarfrestur18. september 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Lyngás 12, 700 Egilsstaðir
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiReyklausSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagSkíðiStarfsmannahald
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Forstöðumaður fasteigna
Háskólinn í Reykjavík

Verkamaður - Járnavinna / Metalworker
Íslenska gámafélagið ehf.

Umsjónarmaður fasteigna og tækja.
Bónus

Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar
Fjölmiðlanefnd

Starfsmaður óskast á Skíðasvæðið í Oddsskarði
Íþróttamiðstöðvar Fjarðabyggðar

Standsetningar nýrra tækja
BRP - Ellingsen

Forstöðumaður tækni og hönnunar
Landsnet hf.

Verkamaður - flokkun og vinnsla
Terra hf.

Forstöðumaður Íbúðakjarna í Ólafsvík
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga

Starf í þrifateymi / Industrial cleaning (with C+E driver´s license)
Nesbú

Assistant in production and installation
Steinprýði ehf

Forstöðumaður stuðnings- og stoðþjónustu fyrir fullorðið fatlað fólk
Skrifstofa starfsstöðva og þróunar