Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Forstöðumaður Minjastofnunar Íslands

Embætti forstöðumanns Minjastofnunar Íslands er laust til umsóknar. Leitað er eftir öflugum og faglegum leiðtoga til að leiða fagstofnun sem hefur það hlutverk að framkvæma minjavörslu í landinu og efla vernd fornleifa og byggingararfs á Íslandi. Minjastofnun Íslands er stjórnsýslustofnun sem annast framkvæmd minjavörslu í samræmi við ákvæði laga um menningarminjar. Innan stofnunarinnar starfa sérfræðingar með yfirgripsmikla fagþekkingu og reynslu á sínu sviði.

Helstu verkefni og ábyrgð

Minjastofnun Íslands er stofnun sem starfar undir yfirstjórn umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra skipar forstöðumann Minjastofnunar til fimm ára í senn. Forstöðumaður ber stjórnunarlega og fjárhagslega ábyrgð á rekstri og faglegri starfsemi stofnunarinnar og ábyrgð gagnvart ráðherra í samræmi við lög og skipurit stofnunarinnar.

Menntunar- og hæfniskröfur

Forstöðmaður stofnunarinnar þarf að búa yfir metnaði og framsýni til að leiða Minjastofnun Íslands til framtíðar. Gerð er krafa um framhaldsmenntun á háskólastigi á starfssviði stofnunar og með haldgóða þekkingu á málefnasviði hennar. Áhersla er lögð á farsæla stjórnunarreynslu og færni í mannlegum samskiptum. Viðkomandi þarf að geta unnið vel undir álagi, vera agaður og skilvirkur í vinnubrögðum og búa yfir góðri hæfni til að tjá sig í ræðu og riti bæði á íslensku og ensku. Við mat á umsækjendum er miðað við kjörmynd stjórnenda út frá stjórnendastefnu ríkisins.

Auglýsing birt26. ágúst 2024
Umsóknarfrestur23. september 2024
Tungumálahæfni
EnskaEnskaFramúrskarandi
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Suðurgata 39, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar