
Nova
Þann 1. desember 2007 opnaði Nova dyrnar að Stærsta skemmtistað í heimi - internetinu! Síðan þá höfum við lagt ofur áherslu á að hlaupa hratt og vera fyrst með nýjungarnar. Við vorum fyrst allra íslenskra símafyrirtækja til að bjóða upp á 4G, 4.5G og nú síðast 5G.
Árið 2016 bætti Nova ljósleiðaraþjónustu í vöruframboð sitt sem byggir á kerfi Ljósleiðarans ehf. Ljósleiðari hjá Nova styður 1000 Mb/s hraða, sem er mesti hraði í heimatengingum á Íslandi. Aðeins það besta fyrir okkar fólk!
Nova hefur átt ánægðustu viðskiptavinina í farsímaþjónustu samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni sl. 16 ár sem er viðurkenning sem við erum einstaklega þakklát fyrir! Slíkum árangri væri ekki hægt að ná nema með besta liðinu en við leggjum okkur öll fram við það alla daga að skapa besta vinnustaðinn. Nova er skemmtilegur og sveigjanlegur vinnustaður, þar sem mikið er lagt upp úr sjálfstæðum vinnubrögðum, frumkvæði og kappsemi.
Þó við segjum sjálf frá, þá er starfsfólk Nova sérlega skemmtilegt, liðsheildin góð og starfsandinn svífur í hæstu hæðum.
Við erum sérstaklega stolt, auðmjúk og þakklát fyrir það að hafa fengið nafnbótina Fyrirtæki ársins í fjögur skipti ásamt því að vera Fyrirmyndar fyrirtæki á vegum VR 16 ár í röð og hlotið Jafnlaunavottun 2023-2026.
Viltu dansa með okkur?

Forritari í hugbúnaðarþróun hjá Nova
Við erum að bæta við okkur forritara til að ganga til liðs við stækkandi hugbúanaðarþróunarteymi Nova. Um er að ræða fjölbreytt hlutverk í teymi sem sér um þróun og rekstur starfrænna lausna fyrir viðskiptavini og starfsmenn Nova.
Þú munt
- taka þátt í þróun og uppbyggingu á sölu-, áskrifta- og viðskiptamannakerfum Nova
- vinna við samþættingu kerfa og tengingar við kerfiseiningar tengdar fjarskiptarekstri
- sinna skipulagi verkefna í samstarfi við kröfuhafa, vörustjóra og aðra í teyminu
- koma að vöruþróun á fjarskiptamarkaði
Þú hefur
- metnað fyrir því að skrifa góðan, viðhaldanlegan kóða
- þekkingu á helstu hönnunarmynstrum hugbúnaðar
- getu til að taka ábyrgð og leiða verkefni tæknilega
- áhuga á að miðla þekkingu og reynslu til teymismeðlima
- vilja til að finna bestu lausnina
Háskólapróf í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða sambærilegt nám eða reynsla er kostur.
Nova er skemmtilegur og sveigjanlegur vinnustaður þar sem mikið er lagt upp úr góðum starfsanda og sjálfstæðum vinnubrögðum. Við leggjum gríðarlega áherslu á sterka liðsheild! Svo ef þú ert hress og lífsglöð manneskja sem vilt umgangast glás af lífsglöðu hæfileikafólki, vaxa og dafna í spennandi umhverfi, vinna fjölbreytt starf og hafa nóg að gera, þá viljum við endilega fá þig í hópinn!
Auglýsing birt4. apríl 2022
Umsóknarfrestur17. apríl 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Lágmúli 9, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
.NETBakendaforritunC#NodeJSSQL
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur í þróun gagnalíkana og greiningu gagna
Fjársýslan

Viltu byggja AI-agenta sem fara í raunverulega notkun?
Fjársýslan

Power Platform & AI Developer
Alvotech hf

SAP Functional Analyst – Manufacturing, Quality & PP/DS
Alvotech hf

Við leitum að kerfisstjóra!
Myllan

Taktu forystu í kerfinu sem bjargar mannslífum!
Alda Öryggi ehf.

Sérfræðingur í netkerfum
Advania

Software engineer
Rivvo

Verkefnastjóri viðskiptakerfa
Advania

Junior Software Engineer
Bókun / Tripadvisor

Back-end Software Engineer
Bókun / Tripadvisor

Front-end Software Engineer
Bókun / Tripadvisor