
RÚV
RÚV starfar í almannaþágu og hefur það hlutverk að vekja, virkja og efla. Öflugt og samhent starfsfólk skoðar samfélagið með gagnrýnum hætti, segir mikilvægar sögur og þróar nýjar leiðir til miðlunar.

Forritari (bakenda)
RÚV leitar að bakenda forritara í 100% starf.
Hefur þú brennandi áhuga á að skapa traustan og notendavænan hugbúnað? Viltu vinna á lifandi vinnustað þar sem atburðir líðandi stundar geta mótað verkefni morgundagsins? Viltu starfa með öflugu og samhentu fagfólki við gerð hugbúnaðar með áherslu á notendaupplifun? Við leitum að kraftmiklu fólki með áhuga á stafrænni þróun í teymið okkar!
Hugbúnaðarþróun RÚV er framsækið teymi og fær mikið frelsi til nýsköpunar og svigrúm til að prófa sig áfram með nýja tækni. RÚV er lifandi vinnustaður þar sem atburðir liðandi stundar geta mótað verkefni morgundagsins. Teymið sér um forritun og utanumhald á öllum öppum og vefum RÚV ásamt fjölmörgum kerfum tengdum efni RÚV og kjarnarekstri.
Unnið er í :
- Python
- Node.js
- GraphQL
- CI/CD ferlum, Gitlab
- .NET, SQL
Menntunar- og hæfniskröfur
B.Sc í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði, tengdu sviði eða sambærileg reynsla
Reynsla og/eða þekking á Agile hugmyndafræði
Fagleg vinnubrögð, metnaður til að læra og vilji til að miðla reynslu
Góð færni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
Geta til að þrífast í síbreytilegu og krefjandi starfsumhverfi
Nýjungagirni og sveigjanleiki til þess að prófa nýja tækni
Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og jákvæðni
Helstu verkefni og ábyrgð
Nýsmíði og þróun hugbúnaðar sem snerta öpp, vefi, innanhússkerfi og -þjónustur RÚV
Taka þátt í að móta, hanna og þróa lausnir og gagnagrunnslíkön
Auglýsing birt25. nóvember 2021
Umsóknarfrestur5. desember 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Efstaleiti 1, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniMetnaðurSQL
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Technical Artist (Mid-level/Senior), Unreal Engine 5
Aveo ehf.

Enterprise Architect | Embla Medical
Embla Medical | Össur

Quality eSystem Specialist
Alvotech hf

Senior Infrastructure Engineer
Fenris Creations

Forstöðumaður Markaðslausna - Stafræn þróun og gagnastýring
Íslandsbanki

Framkvæmdastjóri upplýsingatækni og stafrænnar þróunar
Hrafnista

Sérfræðingur í hugbúnaðarprófunum (Quality Engineer)
SnerpaPower

Senior QA Analyst
Fenris Creations

Sviðsstjóri upplýsingatækni- og gagnamála
VIRK Starfsendurhæfingarsjóður

Sérfræðingur í áhættustýringu - tímabundið starf
Íslandsbanki

Hugbúnaðarsérfræðingur
VÍS

Sérfræðingur í rekstri stjórn- og varnarbúnaðar
Landsnet hf.