Icelandair
Icelandair
Icelandair

FLUGÞJÓNUSTUFÓLK - HÖFN

Icelandair leitar að öflugum einstaklingum í fjölbreytilegt starf við þjónustu og afgreiðslu flugfarþega á Höfn í Hornafirði. Um er að ræða hlutastörf.

Mikil áhersla er lögð á þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum til að tryggja jákvæða upplifun farþega.

Hæfnikröfur:

  • Áhugi og reynsla af þjónustustörfum er mikilvæg.
  • Mjög góð íslensku og enskukunnátta.
  • Góð tölvukunnátta.
  • Gilt bílpróf og vinnuvélaréttindi æskilegt.
  • 18 ára lágmarksaldur.

Starfssvið:

  • Störf á flughlaði við komur og brottfarir flugvéla svo sem lestun og losun.
  • Annast almenna starfsemi í flugstöð.
  • Upplýsingagjöf og þjónusta við viðskiptavini m.a. í gegnum síma.
  • Innritun farþega og farangurs og eftir tilvikum afgreiðsla á vörusendingum.
  • Bókanir og fullnaðarfrágangur á fyrirframgreiddri þjónustu.
  • Skoðun skilríkja og afgreiðsla farþega við brottfarahlið.
  • Staðfesta heildarfjölda farþega um borð
  • Önnur störf sem yfirmaður kann að fela starfsmanni

Þeir sem valdir verða úr hópi umsækjenda þurfa að sækja undirbúningsnámskeið.

Stefna Icelandair er að stuðla að jafnrétti og fjölbreytileika á meðal starfsfólks og hvetur einstaklinga af öllum kynjum til að sækja um.

Umsóknarfrestur til og með 28. júlí nk. áhugasamir sendi inn umsókn ásamt ferilskrá.

Nánari upplýsingar veitir:

Ævar Einarsson, Manager, [email protected]

Rebekka Gísladóttir, People Manager, [email protected]

Auglýsing birt14. júlí 2025
Umsóknarfrestur28. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hornafjarðarfl.völlur , 781 Höfn í Hornafirði
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.LyftaraprófPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.VinnuvélaréttindiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar