
Afgreiðsla
Við hjá Bæjarbakaríi í Hafnarfirði erum að leita eftir starfsmanni í fullt starf í afgreiðslu og aðstoð í bakaríinu frá miðjum ágúst, unnið er eftir kerfinu 2-2-3 unnið er virka daga og önnur hver helgi.
Ef þú ert þjónustulundaður, jákvæður, stundvís og áreiðanlegur þá ert þú einstaklingurinn sem við erum að leita eftir, Íslensku kunnátta er skilyrði.
.
Fyrirtækið Bæjarbakarí var stofnað í mars 1990 og hefur starfað í Hafnarfirði alla tíð. Okkar markmið eru skýr; að bjóða upp á gott vöruúrval, góða þjónustu og góða fagmenn í bakstrinum. Bakstur í bakaríinu okkar einkennist af gæðahráefni og handverki sem skilar sér í fjölbreyttu úrvali af brauði og bakkelsi. Við bökum einnig tertur fyrir öll tækifæri. Þá er einnig aðstaða hjá okkur til að fá sér kaffi og nýbakað bakkelsi.
Afgreiðsla og framleiðslustörf












