

Fjölbreytt sumarstörf
Ert þú ON?
Við leitum að jákvæðum og framtakssömum háskólanemum, iðnnemum og nemum í framhaldsskóla í fjölbreytt sumarstörf fyrir okkar orkumikla og skemmtilega vinnustað.
- Aðstoð við vélfræðinga og vaktfólk
- Innfærsla gagna úr þrívíddarskanna
- Skjala- og upplýsingastjórnun
- Stjórnun og störf við landgræðslu
- Störf á lager
- Störf við gufuveitu
- Umsjón fasteigna og öryggismál
- Vinnsla við teikningar
Hjá okkur er jákvæður starfsandi sem einkennist af sterkri liðsheild, uppbyggilegum skoðanaskiptum og virðingu í samskiptum. Öll kyn eru hvött til að sækja um störfin!
Umsóknarfrestur er til og með 1. mars 2021. Allar nánari upplýsingar um störfin: starf.on.is
Af hverju Orka náttúrunnar?
https://www.on.is/af-hverju-on/
Orka náttúrunnar framleiðir og selur rafmagn til allra landsmanna auk þess að framleiða heitt vatn fyrir höfuðborgarsvæðið. Við rekum virkjanir á Hellisheiði, Nesjavöllum og við Andakílsá.
Við erum leiðandi í umhverfisvænum orkuskiptum á Íslandi, nýtingu auðlindastrauma og höfum sett okkur metnaðarfull loftslagsmarkmið. Við nýtum auðlindir Íslands af ábyrgð og nærgætni með það að leiðarljósi að bæta lífsgæði núna og í framtíðinni.











