Atlantik
Atlantik
Atlantik

Fjölbreytt störf á líflegri ferðaskrifstofu

Vegna aukinna verkefna óskar Ferðaskrifstofan Atlantik eftir nýjum liðsmönnum í framúrskarandi teymi á lifandi og krefjandi vinnustað.

Starfssvið:

  • Tilboðsgerð, úrvinnsla og framkvæmd ferða á Íslandi fyrir hvataferðahópa og farþega skemmtiferðaskipa og önnur tengd verkefni
  • Samskipti við innlenda birgja og erlenda samstarfsaðila
  • Þátttaka í vöruþróun og hugmyndavinnu um nýjungar í ferðaþjónustu

Menntun og hæfniskröfur:

  • Menntun og reynsla á sviði ferðaþjónustu eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Víðtæk þekking á landinu og framboði ferðaþjónustu er æskileg
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli. Önnur tungumál mikill kostur
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum, sköpunargleði, nákvæmni, framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfni, sveigjanleiki og aðstæður til að vinna mikið á álagstímum

Atlantik er fyrirtæki með 44ra ára sögu í ferðaþjónustu. Fyrirtækið sérhæfir sig í þjónustu við farþega skemmtiferðaskipa, hvataferðum, ráðstefnum, viðburðum og fágætisferðamennsku.

Auglýsing birt3. janúar 2022
Umsóknarfrestur16. janúar 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Suðurlandsbraut 4A, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar