Reykhólahreppur
Reykhólahreppur
Reykhólahreppur

Fjármála- og skrifstofustjóri Reykhólahrepps

Reykhólahreppur leitar að öflugum og framsýnum fjármála- og skrifstofustjóra til að leiða fjármálastjórn sveitarfélagins á spennandi tímum uppbyggingar í góðu samstarfi við sveitarstjórn og sveitarstjóra. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem reynir á leiðtogahæfni, skipulagsgetu og framúrskarandi greiningarfærni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á fjármálastjórn sveitarfélagsins og umsjón með fjárreiðum og bókhaldi
  • Tryggja skilvirka fjárhagslega stjórnun og eftirlit með fjármálum sveitarfélagsins
  • Gerð rekstrar,- fjárfestinga- og fjárhagsáætlana í samstarfi við sveitarstjórn og sveitarstjóra
  • Greining og miðlun stjórnendaupplýsinga til stuðnings við ákvarðanatöku
  • Ábyrgð á uppgjörum, skýrslugjöf, afstemmingum og samskiptum við endurskoðendur
  • Umsjón og eftirfylgni með skattamálum og innheimtu
  • Ábyrgð á launaútreikningum og launavinnslu
  • Tryggja áreiðanleika fjárhagsupplýsinga og að reikningsskil séu í samræmi við lög og reglur
  • Náið samstarf við sveitarstjóra og sveitarstjórn við fjárhagslega stefnumótun sveitarfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði viðskiptafræði, fjármála, endurskoðunar eða tengdra greina
  • Reynsla af fjármálastjórnun, reikningshaldi, fjárhagsáætlanagerð og rekstrarstjórnun
  • Sterk greiningarhæfni og geta til að vinna úr flóknum fjárhagsupplýsingum
  • Leiðtogahæfni, metnaður og sjálfstæði í starfi
  • Heiðarleiki, jákvætt viðhorf og framúrskarandi samskiptahæfni
  • Mjög góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
  • Mjög góð almenn tölvukunnátta og reynsla á notkun bókhaldshugbúnaðar
  • Áhugi á virkri þátttöku í uppbyggingarverkefnum sveitarfélagins
Um Reykhólahrepp

Í Reykhólahreppi búa um 250 íbúar og þar af um helmingur í þorpinu á Reykhólum. Reykhólahreppur er á sunnanverðum Vestfjörðum og honum tilheyra Flatey og aðrar Vestureyjar Breiðafjarðar. Svæðið státar af einstakri náttúrufegurð og fjölbreyttu fuglalífi. Reykhólahreppur býr við ríkar auðlindir jarðhita víða um sveitarfélagið og fjölda nýtanlegra gæða til lands og sjávar. Það býður upp á einstök lífsgæði í fallegu fjölskylduvænu umhverfi og fjölbreytt tækifæri til uppbyggingar og atvinnuþróunar.

Á Reykhólum er að finna margvíslega þjónustu. Þar er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli, frístund barna og félagsmiðstöð, hjúkrunar- og dvalarheimili Barmahlíðar, sundlaug, tjaldsvæði, íþróttahús og líkamsrækt, heilsugæsla, Báta- og hlunnindasýning og verslun og veitingasala Bakkabúðarinnar auk ýmissar annarrar þjónustu. Þar starfa Þörungaverksmiðjan hf. og saltverksmiðja Norður & Co ehf. Hótel og veitingastaður er einnig rekið í nágrenni Reykhóla í Bjarkalundi og framundan eru spennandi og áhugaverðir tímar í uppbyggingu og atvinnuþróun sveitarfélagsins á kjörtímabilinu, t.d. á Króksfjarðarnesi, í Garpsdal og í uppbyggingu ferðaþjónustu um sveitarfélagið.

Umsóknarfrestur er til og með 17. júlí 2026. Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjenda til að gegna starfinu ásamt upplýsingum um meðmælendur. 

Umsóknum skal skilað til Kjartans Þórs Ragnarssonar, sveitarstjóra Reykhólahrepps á netfangið: [email protected]

Nánari upplýsingar veita

Kjartan Þór Ragnarsson, sveitarstjóri ([email protected]) í síma 898 0363

Árný Huld Haraldsdóttir, oddviti ([email protected]) í síma 848 4090

Auglýsing birt3. júlí 2026
Umsóknarfrestur17. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Maríutröð 5A, 380 Reykhólahreppur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar