
Inkasso ehf.
Með sameiningu Inkasso - Momentum varð til annað stærsta fyrirtækið á sviði kröfustjórnunar hérlendis.
Fyrirtækið umbreytir innheimtuþjónustu á Íslandi, gerir hana manneskjulegri og stuðlar að hugarfarsbreytingu gagnvart innheimtuferlinu hjá öllum sem það snertir með sérstakri áherslu á upplifun greiðenda og rafrænar lausnir. Fyrirtækið hefur sett sér skýr markmið þegar kemur að sjálfbærnimálum og vinnur að heilindum að því að hafa jákvæð áhrif í íslensku samfélagi.
Hjá Inkasso starfar fagfólk í innheimtu sem sér um yfir 70 þúsund kröfur í hverjum mánuði fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum og sveitarfélögum landsins. Fyrirtækið er í sókn og ætlar sér stóra hluti á sviði kröfustjórnunar og fjártækni á næstu árum.
Fjármála- og rekstrarstjóri
Leitað er að metnaðarfullum og árangursdrifnum aðila sem vill taka þátt í spennandi uppbyggingu Inkasso – Momentum en félagið er annar stærsti aðilinn á sínu sviði á Íslandi.
Fjármála- og rekstrarstjóri ber ábyrgð á fjármálum og daglegum rekstri Inkasso - Momentum. Viðkomandi mun eiga sæti í framkvæmdastjórn félagsins og taka virkan þátt í stefnumótun og framfylgni á henni ásamt því að taka þátt í hinum ýmsu umbótaverkefnum. Fjármála- og rekstrarstjóri heyrir beint undir framkvæmdastjóra.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun á sviði endurskoðunar, viðskiptafræði eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
Árangursrík stjórnunarreynsla og leiðtogahæfileikar.
Reynsla af störfum hjá endurskoðunarfyrirtæki eða af fjármálasviði, reynsla af sambærilegu starfi er æskileg.
Mikil færni á sviði fjármála og rekstrar.
Færni í markmiðsetningu, áætlanagerð sem og af umbótaverkefnum.
Mjög góð þekking á Excel og BI greiningartólum ásamt færni í greiningarvinnu.
Drifkraftur, jákvæðni og framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Yfirumsjón með daglegum rekstri og þróun á innri þjónustu.
Framkvæmd og eftirfylgni markmiðasetningar og áætlanagerðar.
Reikningshald, mánaðarleg uppgjör, árshluta- og ársuppgjör ásamt samskiptum við endurskoðendur.
Greiningar á sviði fjármála, viðskipta og á hagræðingartækifærum í rekstri.
Samningagerð við þjónustuaðila og birgja.
Ábyrgð á regluvörslu og samskiptum við Fjármálaeftirlit Seðlabankans.
Yfirsýn með fjárfestingum.
Auglýsing birt18. nóvember 2022
Umsóknarfrestur29. nóvember 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Laugavegur 182, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Hótelstjóri – Reykjavík Residence Hotel
Reykjavik Residence Apartment Hotel

Sérfræðingur í orkumiðlun
Orkusalan

Samningastjóri
Veitur

Sérfræðingur í áætlanagerð hjá Coca-Cola á Íslandi
Coca-Cola á Íslandi

Féhirðir í Reykjanesbæ - tímabundið starf
Íslandsbanki

Sérfræðingur í launum og kjaramálum
Fjársýslan

Bókari,launafulltrúi
Vörukaup ehf

Samskiptastjóri
BRÚ Lífeyrissjóður

Blaðamaður á Viðskiptablaðinu
Viðskiptablaðið

Forstöðumaður reikningshalds
Ásar

Framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs
Veðurstofan

Sérfræðingur í innkaupum
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins