
Fagaðilar í stoðþjónustu Brekkubæjarskóla
Brekkubæjarskóli er annar tveggja heildstæðra grunnskóla á Akranesi. Nemendur skólans eru um 470 talsins, en starfsmenn um 100.
Brekkubæjarskóli auglýsir lausar til umsóknar stöður fagaðila skólaárið 2025-2026.
Um er að ræða stöður frá 1. ágúst 2025 - 31. júlí 2026.
Leitað er að framsýnum, metnaðarfullum fagaðilum til að sinna stoðþjónustu við Brekkubæjarskóla. Viðkomandi þarf að geta unnið í góðu samstarfi við nemendur, samstarfsfólk og foreldra.
Fagaðili verður að geta skipulagt stuðning til náms fjölbreytts nemendahóps þar sem allir fá tækifæri til að njóta sín á eigin forsendum.
Fagaðili vinnur í árgangateymi með kennurum og stuðningsfulltrúum.
Þroskaþjálfi, iðjuþjálfi eða önnur sérgrein sem nýtist í starfi fagaðila.
Um er að ræða 80% stöður.
- Starfsleyfi í viðkomandi fagstétt (leyfisbréf fylgi umsókn).
- Reynsla af bekkjarstjórnun.
- Þekking og reynsla af teymivinnu og þverfaglegri samvinnu.
- Reynsla og færni í fjölbreyttum kennslu/þjálfunaraðgerðum.
- Reynsla af markmiðssetningu og áætlanagerð fyrir margbreytilegan hóp.
- Reynsla og þekking á mati á þjónustuþörf.
- Frumkvæði og sjálfstæði.
- Góð samstarfshæfni.
- Lipurð og sveigjanleiki í mannlegum samskiptum.
- Óbilandi trú á réttindum barna og ungmenna og áhugi á að starfa með þeim og foreldrum þeirra.
- Góð íslenskukunnátta.

















