Sjúkratryggingar Íslands
Sjúkratryggingar Íslands

Ertu þjónustulipur, lausnamiðaður og til í að hafa áhrif?

Ert þú hress og jákvæð manneskja sem nýtur þess að hjálpa?! Sjúkratryggingar auglýsa laust starf í þjónustumiðstöð stofnunarinnar!

Við leitum að hressum og kraftmiklum fulltrúa til starfa í þjónustumiðstöð stofnunarinnar. Í starfinu felst símsvörun, afgreiðsla í gegnum netspjall, bein afgreiðsla og önnur tilfallandi verkefni. Viðkomandi þarf að búa yfir góðri samskiptahæfni, góðri tölvukunnáttu, sjálfstæði í starfi og vera fljótur að læra og tileinka sér nýja hluti. Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði.

Sjúkratryggingar vinna í verkefnamiðuðu vinnuumhverfi þar sem rík áhersla er lögð á góðan aðbúnað starfsmanna. Boðið er upp á sveigjanlegan vinnutíma auk þess sem starfsfólk nýtur hlunninda á borð við íþróttastyrk og samgöngustyrk vegna vistvænna samgangna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn upplýsingagjöf
  • Verkefni tengd þjónustu við viðskiptavini og starfsemi innan Sjúkratrygginga
  • Ábyrgð á daglegum verkefnum deildar samkvæmt verklagi 
  • Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Jákvætt viðmót, lipurð í samskiptum og rík þjónustulund
  • Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi
  • Vönduð og áreiðanleg vinnubrögð
  • Umbótaþenkjandi hugsun og geta til að starfa bæði sjálfstætt og í hóp
  • Góð almenn tölvukunnátta (tölvulæsi, geta til að vinna í margvíslegum kerfum)
  • Gott vald á íslensku í ræðu og riti
  • Gott vald á ensku í ræðu og riti
  • Reynsla af skrifstofustörfum tengd samskiptum og þjónustu við einstaklinga er kostur
Auglýsing birt23. júlí 2025
Umsóknarfrestur5. ágúst 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Vínlandsleið 16, 113 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar