
Skólamatur
Skólamatur ehf. er fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu og framreiðslu á hollum og ferskum mat, elduðum frá grunni fyrir leik- og grunnskóla.
Skólamatur ehf. var stofnað í janúar 2007. Fyrirtækið er í eigu Axels Jónssonar matreiðslumeistara sem hefur áratuga reynslu af alhliða veitingarekstri.
Hjá Skólamat starfa um 200 starfsmenn. Starfsmannavelta fyrirtækisins er lág og starfsaldur hár. Rúmlega helmingur núverandi starfsmanna hefur unnið í 5 ár eða lengur hjá fyrirtækinu.
Skólamatur leggur áherslu á að skapa fjölskylduvænt vinnuumhverfi þar sem hæfileikar, þekking og reynsla hvers starfsmanns fær að njóta sín. Við leggjum áherslu á símenntun og fræðslu og að starfsmenn fái tækifæri til þess að eflast og þróast í starfi.
Markmið Skólamatar er að ráða, efla og halda hæfu og reynslumiklu starfsfólki.
Gildi Skólamatar eru: Jákvæðni, fjölskylda og virðing.

Viltu vinna fyrir mikilvægasta fólkið?
Flakkari
Finnst þér gaman að flakka á milli starfsstöðva og koma til bjargar á hverjum degi?
Ef svo er þá erum við hjá Skólamat með starf fyrir þig! 😊
Skólamatur leitar eftir “flakkara” í 100% fast starf sem flakkar á milli starfsstöðva í leik og grunnskólum fyrirtækisins á höfuðborgarsvæðinu/suðurnesjum og sér um afleysingar ef upp koma veikindi eða önnur forföll.
Um 100% fast afleysingarstarf er að ræða og er vinnutíminn sveigjanlegur og getur verið á milli 7-16 mánudaga til föstudaga.
Viðkomandi þarf að vera með bílpróf og bíl til umráða.
Starfið felst í undirbúningi og afgreiðslu máltíða og frágangi ásamt léttum þrifum í eldhúsinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Áhugi á mat og matargerð er mikill kostur
- Reynsla úr sambærilegu starfi æskileg
- Góð íslenskukunnátta
- Menntun sem nýtist í starfi kostur
- Jákvæðni, snyrtimennska, sveigjanleiki, stundvísi og sjálfstæð vinnubrögð.
- Geta til þessa að vinna undir álagi.
Fríðindi í starfi
- Vinnufatnaður.
- Íþróttastyrkur.
- Samgöngustyrkur.
- Fjölskylduvænn vinnustaður.
Auglýsing birt24. júlí 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Reykjavík, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagStundvísiSveigjanleiki
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Sól restaurant leitar af kokk í framtíðarstarf
Sól resturant ehf.

Starf í Heilsuhúsinu Kringlunni - Ráðgjöf og þjónusta, framtíðarstarf
Heilsuhúsið

Matreiðslumaður / Chef
Center Hotels

Þjónusta í apóteki - Bíldshöfði
Apótekarinn

Apótekarinn - Flakkari
Apótekarinn

Þjónusta í apóteki - Flakkari
Lyf og heilsa

Viltu verða djúsari? (Fullt starf )
Joe & the juice

Verslunarstörf í ELKO Lindum
ELKO

Þjónusta í apóteki - Mjódd
Apótekarinn

Sölufólk
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.

Selfoss - Afgreiðsla á pósthúsi
Pósturinn

Verslunarstjóri á Akureyri!
Ísbúð Huppu