Austurkór
Austurkór
Austurkór

Ertu lunkinn liðsstjóri ?

Okkur vantar deildarstjóra í flotta liðið okkar

Leikskólinn Austurkór leitar að hæfileikaríkum leikskólakennara til að stýra fallegri og velbúinni deild, byggja upp lið nýrra starfsmanna og setja sitt mark á gróskumikið faglegt starf skólans.

Við í Austurkór horfum til Reggio Emilia og Vygotsky í starfsaðferðum okkar og leggjum mikla áherslu á lýðræðisleg vinnubrögð og flæði. Við skiptum skólaárinu upp í lotur og vinnum markvisst með gildi skólans: lýðræði, atorka og samvinna. Við erum útigarpar sem eru opnir fyrir ævintýrum á aldursblönduðum deildum...enda eru einkunnarorð skólans "Austurkór - þar sem ævintýrin gerast".

Heimasíðan okkar er: https://austurkor.kopavogur.is/

Tvær deildarstjórastöður eru lausar til umsóknar- annars vegar deild með blönduðum aldri og hins vegar deild með yngstu börnin.

Ef þú telur að þú eigir erindi í Austurkórs-liðið endilega smelltu inn umsókn og ævintýrin bíða þín.


Ráðningartími og starfshlutfall

  • Um er að ræða 100 % starf.
  • Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og FL.

Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um starfið.

Þeir sem eru ráðnir til starfa í leikskólum Kópavogs þurfa að skila inn sakavottorði.

Viltu vita meira ?

Hafðu þá samband við Guðnýju Önnu leikskólastjóra - sími 441 5101/Svanhvíti aðstoðarleikskólastjóra - sími 4415102 eða sendu línu á netfangið [email protected]

Menntunar- og hæfniskröfur
Kennaramenntun áskilin
Ábyrgð og hæfni í mannlegum samskiptum
Jákvæðni og sveigjanleiki og frumkvæði í starfi
Áhugi og vilji til að tileinka sér starfsaðferðir skólans
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Góð íslenskukunnátta
Reynsla af deildarstjórnun æskileg
Helstu verkefni og ábyrgð
Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd starfsins á deildinni og mati á því.
Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan deildarinnar, milli deilda leikskólans og milli leikskólastjóra og deildarinnar.
Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna deildarinnar.
Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og ársáætlun leikskólans á deildinni.
Skipuleggur og vinnur að einstaklingsmiðuðu uppeldi og menntun barnanna í samstarfi við samstarfsfólk.
Ber ábyrgð á og tekur þátt í skipulagi og verkefnum deildarinnar/skólans m.a. í þróunarverkefnum, foreldrasamstarfi, samstarfi við aðrar stofnannir, á starfsmannafundum o.fl.
Auglýsing birt2. janúar 2021
Umsóknarfrestur16. janúar 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Austurkór 1, 203 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar