
Ertu í leit að dýrmætri reynslu?
Ert þú kona á aldrinum 20-45 sem ára vantar fjölbreytt starf og dýrmæta reynslu?
Ég er að leita að aðstoðarkonu fullt starf. Ég þarf aðstoð við allar athafnir í daglegu lífi, er hreyfihömluð og nota hjólastól. Ég er í vinnu og námi og ferðast talsvert hér heima og erlendis. Ég er einnig virk í feminísku starfi og réttindabaráttu.
Starfið er því mjög fjölbreytt og getur falist í aðstoð við að keyra bílinn minn, tölvuvinnu, heimilishald, eldamennsku, persónulegt hreinlæti, umönnun barna, ferðalög, halda og skipuleggja viðburði og ótal margt fleira.
Aðstoðarkona þarf að hafa bílpróf, tala íslensku eða ensku, vera sveigjanleg og opin fyrir nýrri reynslu.
Um er að ræða vaktavinnu. Hentar starfið því vel með námi og öðrum verkefnum en einnig eitt og sér.
Starfið er laust.











