Deloitte
Deloitte
Deloitte

Ert þú endurskoðandi framtíðarinnar?

Við leitum að öflugum einstaklingi sem er að stefna á, hefur nýlokið eða er jafnvel að vinna að M.Acc gráðu og langar að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni í alþjóðlegu starfsumhverfi. Við leitum að einstakling sem hugsar í lausnum, getur unnið sjálfstætt, er drífandi og vill hafa áhrif. Sem endurskoðandi framtíðarinnar munt þú starfa í samheldnu teymi undir handleiðslu löggiltra endurskoðenda og öðlast þannig dýrmæta reynslu á sviði endurskoðunar og reikningsskila.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þú vinnur sem hluti af teymi metnaðarfullra einstaklinga
  • Þú vinnur að fjölbreyttum verkefnum í endurskoðun og reikningsskilum
  • Alla jafna vinnur þú í höfuðstöðvum Deloitte en vinnustaður dagsins fer þó eftir tegund verkefna og þeim viðskiptavin sem unnið er fyrir hverju sinni
  • Þú fylgist með þróun og tækninýjungum á þínu sviði
  • Þú nýtir þér námskeið og ráðstefnur á vegum Deloitte og samstarfsaðila til að auka færni þína og þekkingu
  • Þú vinnur undir handleiðslu reyndra endurskoðenda
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Þú brennur fyrir það að þróa færni þína í endurskoðun og reikningsskilum
  • Þú hefur metnað og nýtur þess að læra
  • Þú býrð yfir löngun til að skapa frábæra upplifun fyrir viðskiptavini
  • Þú hefur gaman af því að takast á við ný og krefjandi verkefni
  • Þú býrð yfir góðri íslensku- og enskukunnáttu í ræðu og riti
  • Þú býrð yfir greiningarhæfni og góðri þekkingu á Excel
  • Reynsla af bókhaldsvinnu eða öðru sem nýtist í starfi er kostur
  • Þú ert að ljúka eða hefur lokið B.Sc. menntun sem tengist viðskiptafræði, hagfræði eða fjármálum með góðum árangri
  • Stefnir á, ert að vinna að eða hefur jafnvel lokið M.Acc gráðu
Auglýsing stofnuð12. apríl 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
EnskaEnskaMeðalhæfni
Staðsetning
Dalvegur 30, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar