Suðurverk
Suðurverk

Tæknimaður

Suðurverk hf. óskar eftir að ráða öflugan einstakling með tækniþekkingu til starfa. Í boði er fjölbreytt starf hjá kröftugu fyrirtæki.

Helstu verkefni og ábyrgð:

· Útbúa gögn fyrir vélstýringar tækja

· Úrvinnsla mælingagagna

· Landmælingar

· Önnur tilfallandi störf tengd mælingum/tæknimálum

Menntunar- og hæfniskröfur:

· Menntun sem nýtist í starfi, s.s. á sviði iðn- eða tæknifræði

· Þekking og áhugi á jarðvinnuframkvæmdum

· Þekking á vélstýringum tækja og úrvinnsla gagna kostur

· Góður bakgrunnur í mælingum og úrvinnslu gagna

· Góð samskipta- og samstarfshæfni

· Góð íslensku- og enskukunnátta

Suðurverk er meðal öflugustu verktakafyrirtækja Íslands og býr fyrirtækið yfir miklum og öflugum tækjakosti, reynslumiklu starfsfólki og mikilli fagþekkingu.

Umsóknarfrestur er til og með 8. október 2024. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veita Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) og Þuríður Pétursdóttir ([email protected]) í síma 511 1225.

Auglýsing birt24. september 2024
Umsóknarfrestur8. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hlíðasmári 6, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.IðnfræðingurPathCreated with Sketch.Samviskusemi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar