Félags- og skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu
Félags- og skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu
Félags- og skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu

Deildastjóri í barnavernd og farsældarþjónustu

Félagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu auglýsir laust til umsóknar starf deildastjóra í barnavernd. Um er að ræða 100 % starfshlutfall. Næsti yfirmaður er framkvæmdarstjóri félags- og skólaþjónustu Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu. Félagsþjónusta Rangárvalla og Vestur Skaftafellssýslu er byggðasamlag sem annast félagsþjónustu fyrir 5 sveitarfélög Ásahrepp, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra, Mýrdalshrepp og Skaftárhrepp. Skrifstofur félagsþjónustunnar eru staðsettar á Hellu. Í sveitarfélögunum búa u.þ.b. 6000 manns. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félagsráðgjafafélags Íslands.

Helstu verkefni og ábyrgð

Stjórnunar og forystuhlutverk í barnavernd

Teymisstjóri ber faglega ábyrgð á starfi og skipulagninu barnaverndarteymis. Teymisstjóri situr einnig í farsældarteymi RVS

Vinnsla barnaverndarmála, samskipti og samvinna við börn og foreldra

Samskipti við aðrar stofnanir við vinnslu farsældarmála

Þátttaka og utanumhald um farsældarteymi í samstarfi við aðra ráðgjafa

Virk þátttaka í mótun verkferla, starfsáætlana og endurskoðunar á reglum í málaflokknum

Stýra vikulegum fundum barnaverndarþjónustu og undirbúningur mála

Skýrslugerð, skráningar og greinagerðir

Áætlunargerð barnaverndarþjónustu

Forvarnarstarf

Kynning á starfi barnaverndarþjónustu í skólum og öðrum stofnunum

Menntunar- og hæfniskröfur

Starfsréttindi félagsráðgjafa- Starfsreynsla og þekking á sviðinu æskileg-
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki - Reynsla af stjórnun er kostur - Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum - Góð yfirsýn, vandvirkni og góð vinnubrögð - Góð tölvukunnátta - Færni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku

Auglýsing birt5. desember 2025
Umsóknarfrestur19. desember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Suðurlandsvegur 3, 850 Hella
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar