Náttúruverndarstofnun
Náttúruverndarstofnun

Þjóðgarðsvörður á suðaustursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs

Náttúruverndarstofnun auglýsir stöðu þjóðgarðsvarðar á suðaustursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs lausa til umsóknar. Leitað er að metnaðarfullum og framsýnum stjórnanda með mikla samskiptahæfni, þekkingu og getu til að leiða starfsemi á svæði sem er þekkt fyrir stórbrotna náttúru, fjölbreytt verkefni og öflugt samstarf við samfélagið.

Þjóðgarðsvörður hefur aðstöðu á Höfn í Hornafirði og annast daglegan rekstur þjóðgarðsins á Breiðamerkursandi og austur að Höfn. Næsti yfirmaður þjóðgarðsvarðar er sviðsstjóri landvörslusviðs. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á daglegum rekstri suðaustursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs

  • Mannauðsstjórnun, s.s. ráðningar starfsfólks og fleira í samstarfi við aðra stjórnendur stofnunarinnar

  • Framfylgd rekstraráætlunar í samráði við sviðsstjóra og fjármálastjóra

  • Samskipti og samvinna við hagsmunaaðila, s.s. sveitarfélög, fyrirtæki, stofnanir og íbúa

  • Tryggja og viðhalda verndargildi svæðisins í samræmi við lög og stjórnunar- og verndaráætlanir

  • Ábyrgð á öryggismálum, viðbrögðum við náttúruvá og ástandsmati svæðis

  • Þróun og nýsköpun í þjónustu, fræðslu og uppbyggingu innviða

  • Þátttaka í leyfisveitingum, samningum og áhrifamati vegna atvinnustarfsemi

  • Undirbúningur funda svæðisráðs og þátttaka í stefnumótun stofnunarinnar

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

  • Reynsla af stjórnun, rekstri og/eða mannaforráðum

  • Framúrskarandi samskiptahæfni og geta til vinna í samstarfi við ólíka aðila

  • Skipulagsfærni, lausnamiðuð nálgun og vilji til að taka ábyrgð

  • Áhugi á náttúruvernd og samstarfi við nærsamfélag og ferðaþjónustu

  • Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur

  • Gott vald á bæði íslensku og ensku

  • Leiðtogahæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð

Auglýsing birt2. desember 2025
Umsóknarfrestur12. desember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Litlabrú 2, 780 Höfn í Hornafirði
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar